Æskan

Årgang

Æskan - 01.12.1988, Side 25

Æskan - 01.12.1988, Side 25
Ævintýrið um Hvíta fuglinn birtist fyrst í jólablaði Æskunnar 1987. Stjórn bókaútgáfu Æskunnar var fús að gefa ævintýrin út á bók og þannig urðu Óvænt ævintýri að veruleika." - En voru sögurnar ekki lesnar í barnatíma Ríkisútvarpsins? „Jónas Jónasson útvarpsmaður las Bangsa litla og Hvíta fuglinn í Ríkisút- varpið og að mínu mati heppnaðist sá lestur frábærlega vel.“ - En þú hefur líka skrifað fyrir sjón- varp. „Sigurður Sigurjónsson leikari las ný- lega eftir mig sögu í Stundinni okkar. Þar er um að ræða fyrstu söguna í sagna- flokki um Önnu, - litla stúlku er týnir brúðunni sinni. Rósa Ingólfsdóttir myndskreytti þessa sögu og bætti inn leikhljóðum, svo sem gjálfri í litlum læk þegar Anna litla missir brúðuna í hendur dvergakonungs.11 - En þú myndskreytir líka Óvænt æv- intýri, Ólafur. Er þetta í fyrsta skipti sem þú myndskreytir bók? „Þetta er í fyrsta skipti sem ég mynd- skreyti barnabók en ég hef dálítið fengist við myndskreytingar, bæði hér heima og erlendis.“ - Sem lokaspurning: Var ekki gaman að semja og myndskreyta Óvænt ævin- týri? „Ég hef sjaldan skemmt mér betur!“ - Þú hefur starfað sem kennari og blaðamaður, Ólafur. Hvað kemur til að þú tekur að rita barnabók? „Það var nú bara þannig að ég var eitt kvöldið að leita að íslenskum ævintýrum dl að lesa fyrir strákana mína en ekki hentugt lesefni í bókaskápnum. Ég var orðinn svolítið leiður á að lesa erlend ævintýri. Næsta dag fór ég í nokkrar bókabúðir en allt fór á sömu leið. Hvergi fann ég íslenska ævintýrabók sem ég vildi lesa fyrir strákana. Og um settist ég við tölvuna og hripaði niður ævintýri sem ég hafði sagt yngsta strákn- um mínum, - ævintýrið um Bangsa litla en það er lengsta ævintýrið í bókinni.“ - En nú eru sjö ævintýri í bókinni. Hvernig urðu hin til? „Ég hélt áfram að hamra ævintýri á tölvuna mína því að strákarnir vildu fá Dvergakonungurinn í ævintýrinu um malarastrákinn. íslenskur ævintýrahöfundur - rætt við Ólaf M. Jóhannesson, höfund bókarinnar Óvænt ævintýri. Æskan hefur gejið út bókina Óvænt ævintýri - en í henni eru sjö heillandi og skemmtileg ævintýri ejtir ÓlaJM. Jó- hannesson. Bók aj þessu tagi hejur ekki komið út hérlendis um tugi dra og því Jýsti okkur að vita meira um höj- undinn og aj hverju hannJór að semja ævintýri. . . meira að heyra og næst kom Hvíti fugl- inn og svo eitt af öðru, Dísa litla, svart- þrösturinn í Blátannaborg, geitin hans Jósa og ævintýrið um malarastrákinn. Seinasta ævintýrið, sem ég skrifaði, var sagan af töfrastafnum hans afa. Strákarnir heimtuðu að ég læsi aftur og aftur ævintýrin sjö. Ég lagaði þau til eftir hvern lestur og þegar ég var orðinn sæmilega ánægður sendi ég þau til gömlu, góðu Æskunnar.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.