Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.12.1988, Qupperneq 47

Æskan - 01.12.1988, Qupperneq 47
Kokkinn vantaði Birkir Björn Hauksson er 11 ára Akureyringur og á heima að Steinahlíð 3A. Hann er 11 ára og á þrjú systkini, 21 árs bróður og tvær systur, 22 ára og fjögurra ára. Sú yngri heit- ir Hulda Björk. Skyldi hann vera duglegur að gæta henn- ar? „Ja, tjah, ég passa hana stundum. En maður verður fljótt leiður á því.“ Líklega kannast ýmsir les- endur blaðsins, ekki síst drengir. . ., við að það geti verið dálítið þreytandi! En ef- laust líka gaman, annað veif- ið. Birkir var ekki heima þegar ég hringdi fyrst. Hann var að leik á vélfrysta skautasvellinu. Það hefur verið afar vinsælt. Akureyringar hafa löngum stundað skautaíþróttina á Pollinum - innsta hluta Eyja- fjarðar - en eru nú ekki leng- ur háðir því að hann leggi. Birkir Björn er skáti. Hann er yngstur í flokknum. Félag- Birkir safnar frímerkjum - með föður sínum. Faðir hans hefur lengi haft þetta tómstundagaman og á stórt safn. í sumar fór Birkir til Reykjavíkur og var þar um tíma hjá afa sínum og ömmu á Grandaveginum. Þá fór hann í sundlaugina í Laugardal og skemmti sér vel. Oft á skíðum um helgar Sævar Örn Sæmundsson, Steinahlíð 5E á Akureyri, er 13 ára; á afmæli 25. október. Hann er bróðir Ellenar sem rætt var við í 7. tbl. Sævar er í Glerárskóla og þykir leikfimi, smíðar og sund skemmtileg- ustu námsgreinarnar. í sumar vann hann um skeið í Vinnuskóla Akureyrar, eftir hádegi - við að reita arfa, raka saman heyi og ým- islegt annað. í tómstundum fór hann oft niður á bryggju að veiða. Faðir hans á trillu Sævar Örn og Birkir Björn ar hans eru einu, tveimur og þremur árum eldri en hann. Birkir segist hafa farið í úti- legu nýlega - verið yfir helgi í skátaskálanum Valhöll í Vaðlaheiði. Farið var í göngu- ferðir og fleira gert sér til gamans. „Það gekk ágætlega en verst var að kokkinn vantaði. Það var dálítið bagalegt!“ með bróður sínum og Sævar hefur farið með honum á veið- ar og í skemmtisiglingar. Fjöl- skylda hans fékk einu sinni hraðbát að láni og sigldi um Eyjafjörð. Hann fékk að stýra og þótti gaman. Þá hefur væntanlega verið gott veður og sléttur sjór. Þannig var ekki í siglingu til Englands í fyrra: „Þá var brjálað veður og ég var sjóveikur báðar leiðir,“ segir Sævar. Sævari þykir gaman að renna sér á skautum og skíð- um. í haust hefur hann farið með félögum sínum og systur á skauta á vélfrysta svellinu í Innbænum. Þangað er nokkur spölur úr Glerárhverfi en þau hafa ýmist farið með strætis- vagni eða í bíl með mömmu sinni. „Þar eru mjög margir krakkar að leika sér. Það hef- ur líka verið afar gott veður hér,“ segir Sævar. „Ég ætla kannski að byrja að æfa á skíðum eftir áramót- in. Undanfarna vetur hef ég oft farið á skíði um helgar, eiginlega alltaf.“ Voru rosalegir óvinir Magnús Helgason er átta ára. Hann á heima að Steinahlíð 3F og á eina systur. Hún er tveggja ára og heitir Barbara. Magnús er í 2. bekk í Glerár- skóla. Hann iðkar ýmsar íþróttir. „Ég hef æft fótbolta með Þór í þrjú ár. í sumar fórum við til Húsavíkur og kepptum við strákana þar.“ - Lék pabbi þinn kannski knattspyrnu með Þór? „Nei, nei, hann var í KA. En starfssvæði Þórs er hér í Glerárhverfinu, það er auð- veldara að fara á æfingar hjá þeim.“ Magnús fór nær daglega í sund í sumar með mömmu sinni en á veturna er laugin aðeins opin í hádeginu og eftir klukkan fimm á daginn þar sem sundnámskeið eru á öðr- um tímum. Nú er verið að ganga frá laug við Glerárskóla og er hún ætluð fyrir sund- kennslu. Þá kann þetta að breytast. Fjölskyldan hefur líka stundað skíði á veturna, nema Barbara, en í vetur ætla þau öll saman. Það er ekki ofmælt að skíðaiðkun sé fjölskyld- uíþrótt! Birna, ívar og Magnús að leik. Við vitum að í Hlíðarfjalli ofan við Akureyri er „frá- bært“ skíðasvæði og það er hollt og skemmtilegt tóm- stundagaman barna og ungl- inga í höfuðstað Norðurlands að iðka skíðaíþróttina. Magnús Helgason Við vonum að þeir ungu Akureyringar, sem Heimir hitti á förnum vegi, og auðvit- að allir hinir líka, eigi glaðar stundir í vetur á sléttu svelli og í (hæfilega) brattri hlíð. . . og að sjálfsögðu við skóla- borð. . . og í heilbrigðu tóm- stundastarfi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.