Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.08.1992, Qupperneq 5

Æskan - 01.08.1992, Qupperneq 5
95ÁRA 95ÁRA 95 ÁRA 95 ÁRA 95 ÁRA 95 ÁRA 95 ÁRA 95 ÁRA 95 ÁRA leiðbeiningar og lífsreglur sem vís- uðu lesandanum á ótvíræðan gæfu- veg. Og allt var þetta fært í þann bún- ing sem barnið og unglingurinn gátu notið í ríkum mæli. Þannig var það á mínum æsku- árum og enn í dag mun reynsla hinnar uppvaxandi kynslóðar vera á sama veg. Vissu- lega á hið prentaða mál meira á brattann að sækja nú en nokkru sinni áður. En ég fæ ekki betur séð en að Æskunni sé nú stýrt á þann veg að engu þurfi að kvíða um framtíð hennar á meðan svo er á málum haldið sem nú er gert. Enn sem fyrr má það augljóst vera að útgáfa Æskunnar er eitt gifturíkasta skrefið sem Stór- stúka íslands hefur stigið á meira en aldarlöngum ferli sínum. Þeirrar staðreyndar minnist Stórstúkan með miklu og einlægu þakklæti á merkum tímamótum óskabarnsins. Þær þakk- ir er mér Ijúft að flytja hér frá Stór- stúkunni og frá öllum þeim ótölu- lega lesendafjölda Æskunnar á öll- um aldri sem notið hefur og nýtur enn alls þess sem hún hefir íslensk- um börnum að færa af skemmtun, gleði, fróðleik og uppbyggingu. Megi Æskan eiga trausta og far- sæla samleið með íslenskri æsku á framtíðarvegi. ur Engilberts. Með Grími störfuðu fyrstu árin Ólafur Haukur Árnason, Helgi Tryggvason og Heimir Hannes- son. En mörg síðari starfsár sín var Grímur einn um hituna. Þegar hann hætti fyrir aldurs sakir tóku tveir ung- ir menn, Karl Helgason og Eðvarð Ingólfsson, við ritstjórninni. Síðustu árin hefur Karl einn skipað ritstjóra- sætið. Svo sem sjá má af þessari upp- talningu er síst ofmælt þótt sagt sé að í ritstjórn Æskunn- ar hafi löngum verið um einvalalið að ræða. Blaðið hefir líka sýnt það sjálft svo að eigi verður um villst að þar hefir verið vel að verki staðið. Vissulega hafa miklar breytingar orð- ið á útliti þess og efni. En yfirleitt hafa það alltaf verið breytingar til batnaðar, breytingar sem komu til móts við breytta tíma og svöruðu þeim kröfum sem gerðarvoru hverju sinni. Það heldurenn í dag sinni upp- haflegu reisn. Aldursmerki sýnir það engin þótt hundrað ára afmælið sé nú á næsta leiti. Miklu fremur má segja að það sé nú, eins og oftast áður, ólgandi af heilbrigð- um og hressandi æskuþrótti. Sjálfur á ég dásamlegar minn- ingarfrá samfélagi Æskunnar. Ég var ekki nema sjö ára þeg- ar ég var svo lánsamur að móður- systir mín, Elínborg Björnsdóttir sem þá var farkennari heima í sveitinni minni, gerði mig að áskrifanda þessa heillandi blaðs. Það var ekki lítil upp- hefð í því fólgin að fá mánaðarlega sent í pósti blað á sitt eigið nafn. Oft var ég farinn að telja dagana löngu áður en það kom. Og allt var það les- ið með þeirri áfergju og eftirtekt sem börn á okkar dögum gera sér varla grein fyrir. Þarna voru falleg Ijóð, á- hrifaríkar smásögur og hörkuspenn- andi framhaldssögur, að ógleymd- um myndunum sem heilluðu barns- hugann svo að ennþá, eftir bráðum 60 ár, eru þær Ijóslifandi í'vitund minni. Um það leyti, sem ég gerðist á- skrifandi að Æskunni, var sú nýbreytni að hefjast að hafa lit- prentaðar kápur. Á forsíðu voru þá gjarnan fallegar landslagsmyndir. Ég sé þær í anda þessar myndir og man ennþá áletranirnar sem fylgdu þeim: „Snæfellsjökull himinhár, horfiryfir sæ.“ „Garðurinn í Múlakoti í Fljóts- hlíð. Styðjum öll að því að svona fal- legir garðar komi við hvern bæ á ís- landi.“ Stundum voru á einni síðu í blaðinu myndir af börnum og unglingum með yfirskriftinni: „Styrktarmenn Æskunnar." Þetta voru útsölumenn blaðsins úti á landsbyggðinni. En hvað ég óskaði þess heitt að geta einhvern tíma eignast sæti meðal þessarra styrkt- armanna! Eitt er víst. Æskan, með sínu fjöl- breytta efni, hafði sterk, varan- leg og mjög jákvæð áhrif á mig í uppvextinum og það er sannfær- ing mín að þeir séu miklu fleiri en flesta grunar sem hafa að einhverju leyti af sömu reynslu að segja. í Æskunni var þær fyrirmyndir að finna, sem gott var að líkjast, og þær Æ S K A N 5

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.