Æskan - 01.08.1992, Blaðsíða 23
FRAMHALDSSAGA LESENDA:
OF VENIULEGT - EDA ...
Hér birtist 2. hluti framhalds-
sögu lesenda. Upphaf sög-
unnar var á bls. 25 í 7. tbl.
Æskunnar. Þar sögðum við
frá Hlíf og fjölskyldu hennar.
Hlíf er á fjórtánda ári (raunar
eru ekki nema tíu dagar síð-
an hún varð þrettán ..) og
finnst hún sjálf of venjuleg og
líf fjölskyld sinnar allt of
venjulegt... Hún hafði farið
upp í fjall, sest þar í laut milli
blóma - til að bíða eftir ævin-
týrinu...
Margrét Guðrún tekur við...
Ég veit ekki hve lengi ég hef
beðið og latið mig dreyma en
allt í einu heyri ég eitthvað -
eins og skelli eða hófatak.
Ég hleyp upp á hól skammt
frá læknum sem ég sat við.
Þegar ég hef horft í kringum
mig kem ég auga á einhvern
ríðandi á gráum hesti. Ég fer í
nokkrum stökkum niður hól-
inn og þegar ég stöðvast á
jafnsléttu stend ég fyrir fram-
an gráa hestinn og sé að á
honum situr strákur á aldur
við mig. Stutta stund virði ég
gestinn fyrir mér en svo átta
ég mig og segi:
„Halló! Ég heiti Hlíf. Hver
ert þú?"
Fram að þessu hefur strák-
urinn glápt á mig, næstum
eins og ég væri vera af öðrum
heimi en svo segir hann hlæj-
andi:
„Ég - ég heiti Kári."
Ég verð hálf-feimin og veit
ekki hvað ég á að segja en
styn þó upp:
„Hvað ertu að gera?"
„Ég er eiginlega að leika
mér," svarar Kári og er enn
brosandi.
Við það verð ég enn aum-
ingjalegri og get varla staðið
þarna lengur.
„Nú sér Kári örugglega að
ég er að því komin að hlaupa
í burtu," hugsa ég.
í flýti segir hann mér að
hann sé í heimsókn hjá
frænda sínum á bæ innar í
firðinum. Ég verð sjálfri mér
lík aftur og við spjöllum áfram
um okkur sjálf.
Allt í einu spyr Kári:
„Viltu koma á hestbak?"
Ég hugsa mig um. Heima
bíður mín ástsjúkur bróðir og
eflaust ætti ég að vera heima
þegar mamma og pabbi
koma úr vinnunni. En boð
Kára er of freistandi og þegar
ég kinka hikandi kolli til sam-
þykkis réttir hann mér hönd-
ina og segir:
„Stökktu á bak hér fyrir aft-
an mig."
Ég er bæði hrædd og spennt,
hef ekki nema einu sinni kom-
ið á hestbak. En nú er kannski
loksins eitthvað óvenjulegt að
gerast...
(Höfundur þessa kafla er
Margrét Guðrún Ásbjarnar-
dóttir 11 ára, Þorgrímsstöð-
um, Vestur Húnavatnssýslu
(531 Hvammstangi).
Nú er um að gera að
spreyta sig á að semja fram-
hald. Frestinn verðum við
því miður að hafa mjög
skamman - til 14. október.
Þess vegna verðið þið að hefj-
ast handa um leið og þið haf-
ið fengið blaðið.
Allir höfundar þeirra kafla
sögunnar sem hér birtast
mega velja sér tvær bækur að
launum - sjá lista á bls. 59)
Æ S K A N 2 3