Æskan - 01.08.1992, Page 40
hella sér út íþá baráttu.
Nýju krakkarnir eiga skilinn
stuðning Æskunnar.
Hvort Nýju krakkarnir syngja
allar söngraddirnar á plötum
sínum er óljóst. Það er algengt í
dægurlagaheiminum acI þeir
sem útsetja söng og hljóðfæra-
leik treysti í sumum tilfellum bet-
urá sjálfa sig en aðra. íþví tilfelli
nægir að nefna Milli Vanilli, Bo-
ney M. og Frankie Goes To
Hollywood. í þeim dæmum
sungu útsetjarar og spiluðu
meira en þeir sem voru í sjálfu
sviðsljósinu.
Sá sem þetta skrifar var eitt
sinn vitni að þvíþegar upptöku-
stjóri var óánægður með
bassagítarleik ónefndrar hljóm-
sveitar. Upptökustjórinn þurrk-
aði bassaleik bassaleikarans út
af segulbandinu og spilaði síð-
an bassagítarleikinn sjálfur. Plat-
an kom út mecI bassagítarleik
upptökustjórans án þess að
bassagítarleikari hljómsveitar-
innar hefði hugmynd um það og
hefur ekki enn þann dag í dag.
Hann hefur m.a. hælt sér afgóð-
um leik á þessari plötu.
Okkur er kunnugt um annað
dæmi líkt þessu. íþví tilfelli var
færasti trymbill landsins látinn
hlaupa í skarðið fyrir annan,
með fullu samþykki þess.
Áður hefur komið fram að við
hrífumst af snotrum laglínum
GN’R. En það er ástæðulaust af
okkur að verðlauna hljómsveit
sem þrífstá kynþáttafordómum,
andúð á lögreglu, kvenfyrirlitn-
ingu og nú síðast óskaði hljóm-
sveitin eftir því að ákveðinn á-
fengisframleiðandi yrði styrkt-
araðili GN’R.
CHER
Popphólf!
Vissuð þið að unglegt útlit söng-
konunnar Cher stafar eflaust af öll-
um þeim lýtalækningum sem hún
hefur farið í. Farið nú að gera eitt-
hvað í þessum Poþþþætti. Hann
er glataður.
Henry T. Sverrisson.
Svar:
Það er rétt að söngkonan
Cher hefur nýtt sér þjónustu
lýtalækna. Án heilsusamlegs líf-
ernis (stöðugrar líkamsræktar
ásamt bindindi á áfengi og tó-
bak) myndu fegrunaraðgerðirn-
ar aðeins verða svipur hjá sjón.
Þegar kvartað er undan
Poppþættinum þá er æskilegt
að tiltekið sé hvað megi betur
fara. Annars erum við engu nær.
Og þar með er lítil von á bótum.
NÝJU KRAKKARNIR
Kæra Popphóif!
Millinafn Donnies í NKOTB er
EDMOND en ekki Edmand.
Salóme Sigurðardóttir,
Hlíðarvegi 14, Bolungarvík.
DANSMÚSÍK
Kæra Popphólf!
Mig langar í umfjöllun um harða
dansmúsík (hardcore). Þessi mús-
ík er miklu vinsælli en þungarokk.
Við íslendingar eigum margar frá-
bærar hljómsveitir á þessu sviði
eins og heyra má á plötunni lcera-
ve. Hljómsveitin Ajax skarar þar
fram úr.
Hvernig væri að fjalla eitthvað
um þessa músfk?
Hardcore-aðdáandi
í Reykjavík.
Svar:
Nýverið fjölluðum við um
uppruna og þróun rabb- og hip-
hop músikur. „Rave“,
„hardcore“, „softcore“, „house"
og „sýra“ eru náskyld dansmús-
Public Enemj
Brasitiska ..þrass' hljómsveitin
Sepultura
íkurfyrirbrigði. Við munum fjalla
um þá músík innan tíðar.
Þessa stundina liggur Popp-
þátturinn yfir plötunni „lcerave“.
Ætlunin er að taka saman sér-
staka grein (plötudóm) um hana.
Greinin birtist væntanlega í
næsta þætti.
ÞUNGAROKK
Popphólf!
Væri ekki hægt að hafa meira
um þungarokk í Poppþættinum?
T.d. um Venom og Sepultura?
Death-metal
aðdáandinn mikli á
Hvammstanga.
Svar:
Það er ólíklegt að vægi þung-
arokks aukist til muna í Popp-
þættinum. Við reynum að gera
flestum dægurmúsíkstefnum
skil, í réttu hlutfalli við vinsæld-
ir þeirra.
METALLICA
Popphólf!
Mig langar til að biðja ykkur um
veggmynd og upplýsingar um
Metallicu.
Linda.
ANTHRAX
Kæra Popphólf!
Getur þú birt fróðleiksmola og
veggmynd af hljómsveitinni Ant-
hrax?
Gulli Adams, Akureyri
PUBLIC ENEMY
Halló, Popphólf!
Getið þið birt fróðleiksmola um
Public Enemy? Þið fjallið of lítið
um rap en of mikið um þungarokk.
KRS One í Svíþjóð
LIVING COLOUR
Kæra Popphólf!
Það hefur aldrei birst grein um
Living Colour eða veggmynd. Von-
andi kemur það bráðum.
M.Ö., Akranesi
Svar:
Þetta er örlítið brot af þeim
óskum sem Poppþættinum ber-
ast. Eins og sjá má þykir einum
of mikið fjallað um þungarokk
en öðrum þykir þungarokkið
vera hornreka. Við reynum að
sinna þeim óskum sem flestir
bera fram. En svo að mark sé
tekið á bréfum verður nafn og
heimilisfang bréfritara að fylgja.
Við virðum beiðni um nafnleynd
þegar við birtum bréfin.
4 4 Æ S K A N