Æskan

Árgangur

Æskan - 01.08.1992, Síða 52

Æskan - 01.08.1992, Síða 52
NÝIR FELAGAR 76. Guðrún Lilja Óladóttir, Álfaheiði 14, 200 Kópavogi. Hún er 13 ára og hefur safnað frímerkjum í 7 ár. 77. Hanna Rut Samúelsdóttir, Stóru-Sandvík 4, 801 Selfoss. Hún vill senda íslensk frímerki í staðinn fyrir útlend merki - og íslensk frá því fyrir 1978. 78. Þórhildur Ólafsdóttir, Fagurhólstúni 3, 350 Grundarfirði. Er 11 ára - hefur safnað í 5 ár LANGT AD KOMIÐ Okkur hefir borist bréf frá Singapúr. Það er frá manni að nafni Ernie Dei Choon Guan, #07-228 Redhill Close, Block 1, Singapore 0315. Maður þessi safnar frímerkjum frá íslandi, Færeyjum, Grænlandi, Álandi, Mongólíu, Albaníu og Norður-Kóreu. Hann er Singapúrbúi af kínverskum ættum. Hann hefir fleiri áhugamál en að safna frímerkjum og eignast skipti- vini. Til dæmis á hann gullfiska, tekur myndir, veiðir, fer í gönguferðir og tjald- ferðir. Svo vinnur hann með hljóð og myndir í viðtækjum. Þá les hann mik- ið og hefir í því efni áhuga á að lesa um önnur lönd og fólkið sem byggir þau. Nú reynir á hvort þið treystið ykkur til að skrifast á við hann en hann skrif- ar góða ensku. Norskur unglingur hefur einnig sent okkur bréf og lýst löngun sinni til að skipta á frímerkjum við íslendinga. Nafn og póstfang: Turid Myklebust, St. Olavs Gt. 37, 2000 Lillestrem. FRÍMERKJAKLÚBBUR ÆSKUNNAR Umsjónarmaður: Sigurður H. Þorsteinsson skólastjóri, Laugarhóli, 510 Hólmavik. Flest kannist þið vafalaust við teiknimyndastjörnuna Ástrík en hér á landi hafa verið gefnar út bækur með ævintýrum hans. Ástríkur var Galli eða frá því landi sem nú heitir Frakkland og var uppi þar á róm- verskum tíma þegar landið var nefnt Gallía og var hluti Rómaveldis. Það mun hafa verið um það bil 200 árum eftir Krist. Á eyjunni Guernsey fannst hluti brunnins skips frá þessum tíma á jóladag árið 1982. Þarna fannst mik- ið af hlutum sem höfðu varðveist vel þar sem feiti um borð í skipinu hafði bráðnað við brunann og umlukt hlut- ina og verndað í öll þessi ár. Nú hefir póststjórn eyjarinnar gef- ið út samstæðu frímerkja með myndum af Ástríki og siglingu hans með vörur frá meginlandinu til sölu á eyjunni. Þá er skotið eldörvum að skipinu og það brennur undan á- höfninni sem bjargast í land. Auðvitað fengu þeir franska fyr- irtækið, sem teiknar Astríkssög- urnar, til þess að teikna frímerkin. Það er fyrirtækið Studie Legrain og höfundur Ástríks er Albert Uderzo. Frímerkin sýna hvernig skipið er smíðað. Síðan er það hlaðið með vörum til flutnings og loks er því siglt yfir hafið. Þá ber vanda að höndum. Það kviknar í skipinu og það brennur og sekkur en Gallar synda í land með Ástrík á maganum. Kafarinn Richard Keen ætlaði sér að kafa eftir skelfiski í Péturs- höfn og þar sem aldrei var jafn-ró- legt að fara til slíkra hluta og á jóla- dag valdi hann einmitt þann dag til þess, það var 1982 og þá hófst seinna ævintýrið sem endaði svo með frímerkjaútgáfu eftir að öllum munum skipsins hafði verið kom- ið fyrir á Sjóminjasafninu á eyjunni. Ekki sakar það að frímerkin eru vel unnin, litrík og það sem við köll- um falleg. 5 6 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.