Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.08.1992, Qupperneq 57

Æskan - 01.08.1992, Qupperneq 57
Salóme Sigurðardóttir, Bolungarvík: GAMflU OG MITTT INNGANGUR |\| 1/nTn hefur í mörg ár IMIxU I D verið ein vin- sælasta barna- og unglingahljóm- sveitin í heiminum. Ég var beðin um að skrifa grein um hana og í þessu tölublaði Æskunnar og þeim næstu fáið þið að lesa söguna sem Jonath- an, Donnie, Danny/Jordan og Jos- eph segja að sé sú eina rétta... FYRRI HLUTI UM NYJU KRAKKANA.. - New Kids on The Block. HVERJIR ERU ÞETTA? í hljómsveitinni New Kids on The Block eru fimm hressilegir piltar frá Boston í Massachusettsfylki í Banda- ríkjunum. Þeir heita: Jonathan Ras- hleigh Knight, Daniel William Wood, Donald Edmond Wahlberg, Jordan Nathaniel Marcel Knight (bróðir Jón- atans) - og Joseph Mulrey Mcln- tyre. Allir eiga þeir gælunöfn: Jon, Danny, Donnie, „J“ og Joey Joe. JONATHAN Hann fæddist 29. nóvember 1968 í Worchester í Massachusettsfylki. Fjölskylda hans átti heima í litlum bæ sem heitir Lanchester þartil hann var þriggja ára en þá fluttist hún til Westwood. Árið 1973 fluttust fjöl- skyldan til Dorchester og á enn heima þar. Móðir hans heitir Marlene en fað- ir hans Allan. Eldri bræður hans eru David og Christopher, eldri systur Allison og Sharon. Jordan er átján mánuðum yngri en Jónatan. Milli þeirra voru alltaf nánust tengsl. Þröngt var í húsakynnum fjölskyld- unnar um skeið og þá voru allir bræðurnir fjórir saman í herbergi, sváfu í tveimur kojum. Þó að Jónatan stæði Jordan næst var hann að eðlisfari líkastur Sharon. Þau áttu mörg sameiginleg áhuga- mál og höfðu svipaða skapgerð. Fjöl- skyldan hefur staðið þétt saman og verið mjög samstíga. Það á líka við um afa hans og ömmu, Floyd og Pearl. Þess vegna finnst honum mjög erfitt að vera mikið að heiman. Hann hefur alltaf verið myrkfælinn og hefur enn kveikt Ijós í baðher- bergi meðan hann sefur. Þegar hann var lítill óttaðist hann skrímsli og þess háttar fyrirbæri. Húsið í Dorchester var svo stórt og lóðin svo stór að líkja mætti því við sveitabæ í borg. Jónatan átti alltaf mikið af dýrum, t.d. hænsni, geitur, svín, kanínur (22!) og hest. Móðir hans vann sem félagsráð- gjafi þegar hann var að alast upp. Þá eignaðist hann mörg fóstursystk- ini. Þau voru oftast 15-18 ára þegar þau komu inn á heimilið. Allt um fjöldann fóru þau stundum bara átta í ferðalag til afa og ömmu við Erie- vatn og á bóndabýli til föðursystur þeirra í Kanada. Fjölskyldan fór alltaf öll saman í kirkju í hverri viku. Jónatan byrjaði að syngja í kirkjukór þegar hann var sjö ára. Kóræfingar voru á miðviku- og föstudögum og á sunnudögum söng kórinn fyrir söfnuðinn. Hann hefur alltaf haft gaman af söng og segir að ein af bestu minningunum frá æskuárunum sé að hafa verið í kórnum. Hann átti sér þann draum að verða frægur. Hann var vanur að hlaupa um húsið með hljóðnema og syngja fyrir framan spegilinn. Og auðvitað er hann ánægður með að æskudraumur hans hefur ræst. Þegar hann var 16 ára heyrði hann fyrst að verið væri að leita að ungum strákum í hljómsveit. Jord- an hafði sungið til reynslu og verið valinn. Þegar hann kom heim um kvöldið spurði mamma þeirra hvar hann hefði verið. Henni leist ekki mjög vel á svarið en daginn eftir fór hún til fundar við þann sem sá um að prófa drengina, Maurice Starr. Þá snerist henni hugur. Hún spurði hvort ekki vantaði annan strák og Jónatan fór í próf. Það tók Maurice ekki nema nokkrar sekúndur að á- kveða sig og þið vitið hvernig fór! (Samkvæmt venju Æskunnar er nafn- ið Jonathan íslenskað í meginmáli grein- arinnar (þar sem samsvarandi heiti er til í málinu). Salóme hefði kosið að það væri alls staðar ritað að enskum hætti) Æ S K A N <5 7

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.