Æskan - 01.07.1993, Side 9
„Já, nokkrir mjög góðir. Þar var
einn frá Moldavíu (- fyrrum Sovét-
lýðveldi); hann varð 6. í 400 m fjór-
sundi á Ólympíuleikunum í Bar-
selónu. Ég æfði með honum. Það er
mjög gott að hafa einhvern til að
elta!“
- En þú tókst stefnuna á Ala-
bama?
„Ég keppti á bandaríska meistara-
mótinu. Þjálfarinn í Alabama var
kunningi þess sem þjálfaði mig. Eftir
mótið bauð hann mér að koma
þangað.“
- Þú verður þá á skólastyrk ...
„Já, en samt verður þetta mjög
kostnaðarsamt, sérstaklega fyrsta
árið. Menn verða að sýna sig og
sanna til að styrkurinn verði hækk-
aður. Foreldrar mínir styðja mig
mest - en ég fæ líka styrk frá Þor-
lákshafnarbæ."
- Sundæfingar eru afar erfiðar.
Hefur einhvern tíma hvarflað að þér
að hætta að æfa?
„Nei! Ég hef haft gaman af þessu
og allar dyr standa mér opnar. Ég
fer ekki að kasta því á glæ.
En 400 m fjórsund er ein erfiðasta
greinin í sundíþróttinni. Hún gerir
miklar kröfurtil manns. Þeir sem vilja
ná góðum árangri í íþróttum verða
auðvitað að lifa heilbrigðu lífi og
hafna óhollustu, t.d. reykingum."
- Hefur þú gefið þér tíma til að
sinna öðrum áhugamálum?
„Já - dálítinn. Ég hef áhuga á
körfubolta og hef leikið hann frá
1984. Ég æfði líka knattspyrnu sem
strákur og var lítilsháttar í hesta-
mennsku. - Já, það getur verið vara-
samt fyrir sundmenn að stunda
þessar greinar. Það er bara svo
skemmtilegt. Maður reynir að gæta
sín ...“
- Lokaorð til lesenda ...
„Ég vil nefna það að allt of margir
ungir og efnilegir íþróttamenn hætta
of snemma af því að þeir taka
skemmtanir fram yfir íþróttirnar. Ég
vil hvetja alla krakka, sem stunda í-
þróttir, til að halda áfram, hvort sem
þeir eru í fremstu röð eða ekki. Ég
þurfti að þrauka í nokkur ár og var
aldrei fremstur. Það var ekki fyrr en
ég varð 16 ára að ég varð sá besti í
mínum aldurshópi."
- KH
langsund en Magnús og Bryndís
sprettsund: skriðsund. Þau hafa
bæði spreytt sig í flugsundi og eiga
met í því.“
- í hvaða greinum áttu íslands-
met?
„200 og 400 m fjórsundi og 200
m flugsundi - í 50 m laug - og 400
m fjórsundi í 25 m laug. Líka nokkur
boðsundsmet í 25 m laug með
Sundfélagi Suðurnesja (SFS).“
- En nú keppir þú með Þór í Þor-
lákshöfn ...
„Já - og hef gert nema í tvö ár.
Ég var með SFS meðan ég var við
nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
Keflavík, 17 og 18 ára.“
- Móðir þín hefur þá lengst af ver-
ið þjálfari þinn?
„Já, þangað til ég fór til Keflavík-
ur; líka núna í sumar fyrir Evrópu-
meistaramótið. Þá studdist hún við
æfingaáætlun frá finnskum þjálfara í
Ægi.“
- Hvenær kepptir þú fyrst erlend-
is?
„Á Evrópumeistaramóti unglinga
1990. Síðan tók ég þátt í smáþjóða-
leikunum í Andorra 1991 - varð þar
þriðji í einni grein - og í Evrópu-
meistaramótinu í Aþenu sama ár.“
- Uppskeran varð meiri í sumar
en 1991 ...
„Já, sex gullpeningar, einn silfur-
peningur og tveir úr bronsi. Nú eru
æfingarnar farnar að skila sér vel. Ég
var í Bandaríkjunum í vetur og æfði
með Santa Clara-sundfélaginu í
Norður-Kaliforníu. Mér finnst muna
mestu að synda í kaldri laug. Þá get-
ur maður æft 30% betur en í heitum
laugum eins og hér eru. Það hefur
lengi verið talað um að byggja yfir
50 m æfingalaug fyrir keppnisfólk í
sundi en ekkert orðið úr því. Það
snýst allt um knattíþróttirnar!
Ég stefndi að því að vera í sem
bestri þjálfun á Evrópumeistaramót-
inu. Smáþjóðaleikarnir voru bara lið-
ur í undirbúningi fyrir það. En matar-
eitrunin gerði strik í reikninginn. Ég
gat ekki beitt mér lengi á eftir og
léttist um 7 kg. Vöðvarnir rýrnuðu
svo að það hlaut að draga úr manni
kraftinn."
- Samt settir þú tvö íslandsmet...
„Já, það tókst því að undirbún-
ingurinn var góður. Þau hefðu orðið
enn betri en raunin varð ef ég hefði
getað haldið áætlun."
MEÐ AFREKSMÖNNUM
í ALABAMA
- Hvað er fram undan?
„Ég verð væntanlega í Alabama-
háskóla í Bandaríkjunum næstu
fimm árin og ætla að einbeita mér
að því að verða betri sundmaður en
ég er nú og mennta mig vel. Ég var
raunar á íþróttabraut hér en ætla
ekki í slíkt nám. Ég býst við að læra
eitthvað í sambandi við viðskipti."
- Voru góðir sundmenn í félaginu í
Kaliforníu?
Sundsystkinin frá Þorlákshöfn: Magnús, Bryndís og Arnar Freyr.
Æ S K A N 9