Æskan - 01.07.1993, Síða 22
ÆSKU
PÓSTUR
ÆSKUPÓSTURINN
- pósthólf 523,
121 Reykjavík.
SKIPTIMARKAÐ-
URFYRIR
KÖRFUKNATT-
LEIKSMYNDIR
Kæri Æskupóstur!
Er spilaklúbburinn hætt-
ur?
Er hægt að hafa skipti-
markað fyrir körfuknatt-
leiksmyndir?
Ég er mjög ánægður
með teiknimyndasöguna
um Evu og Adam.
Sósulíus.
Svar:
Spilaklúbburinn er ekki
hættur og eitthvert efni,
sem tengist honum, verð-
ur birt í vetur. Skrá yfir fé-
laga var í 8. og 10. tbl.
1992.
Þeir sem safna mynd-
um af körfuknattleiks-
mönnum geta að sjálf-
sögðu sent okkur bréf og
óskað eftir skiptum við þá
sem áhuga hafa. Við birt-
um þau í dálkinum sem
kallast Við safnarar. Ef
mjög mörg bréf berast
verða þau sett i sérstakan
dálk.
BARNASTÚKUR
Kæra Æska!
Hvernig getur maður
orðið félagi í barnastúku?
007.
Svar:
Upplýsingar um starf
barnastúkna gefur Jón K.
Guðbergsson stórgæslu-
maður unglingastarfs (=
formaður landssambands
barnastúkna). Vinnusími
hans er 19944 - en einnig
er unnt að ná sambandi
við hann i síma 985-
29600. Ég hef afhent hon-
um bréfið.
TÓNLIST OC
DÝRA- OC FORN-
LEIFAFRÆÐI
Kæri Æskupóstur!
Ég þakka gott blað.
1. Væri hægt að hafa
þátt í blaðinu um sígilda
tónlist - svipaðan Sögu
rokksins? Gætuð þið birt
veggmynd og fróðleiksmola
um söngvarana Luciano
Pavarotti, Jósé Carreras,
Placido Domingo og Krist-
ján Jóhannsson?
2. Er hægt að læra dýra-
og fornleifafræði á íslandi?
Hve langan tíma tekur það?
Markús Már.
Svar:
1. Við munum athuga
það.
2. Líffræði er kennd við
Háskóla íslands. Dýra-
fræði er hluti námsefnis-
ins. B.S.-próf er að jafnaði
tekið eftir þriggja ára
nám. Unnt er að stunda
framhaldsnám við deild-
ina að því loknu - 4. árs
nám eða meistaraprófs-
nám.
Fornleifafræði er ekki
kennd hér á landi.
MÉR FINNST.. ÍC
TEL .. ÍC VIL
Kæra Æska!
Þökk fyrir gott blað.
Er þátturinn, Mér finnst..
ég tel .. ég vil, hættur? Get-
ið þið haft veggmynd með
Ace of Base?
Elva.
Svar:
Þátturinn er enn á dag-
skrá. En lesendur eru ó-
duglegir við að senda efni
i hann.
Veggmynd? Ef til vill...
AÐDÁENDA-
KLÚBBUR
NKOTB
Ágæti Æskupóstur!
Aðdáendaklúbbur
NKOTB, sem ég rak í Bol-
ungarvík, hefur flust með
mér til Noregs. Póstfangið
er:
8770 Træna - Noregi.
Tafir verða á útgáfu
fréttabréfsins um sinn - þar
til allt kemst í rétt horf.
Salóme Sigurðardóttir.
TUNGUMÁL-
FYRIRSÆTUR-
LJÓSMYNDARAR
Sæll, Æskupóstur!
1. Mig langar ákaflega til
að læra tungumál, svo sem
spænsku, frönsku, ítölsku
og japönsku, en fæ ekki
tækifæri til þess fyrr en í
framhaldsskóla. Mig langar
til þess að byrja að læra
þau strax. Getur þú bent
mér á leið til þess?
2A. Mig langartil að fá
vitneskju um fyrirsætustörf
- og að vita hvernig ég á að
mála mig, greiða mér,
klæða mig, ganga og öðlast
sjálfstraust. Hvert á ég að
snúa mér?
Dúllí.
Kæri Æskupóstur!
1. Ég hef mjög gaman af
tungumálum og er að
hugsa um að fara í bréfa-
skóla. Hvernig á að skrá sig
í hann og hve gamall þarf
maður að vera til þess?
2B: Getur maður lært
Ijósmyndun 13 ára?
Ronja ræningjadóttir.
Svar:
1. Bréfaskólinn, Nóatúni
17 í Reykjavík, s. 629750,
veitir möguleika á bréfa-
námi og sjálfsnámi í fjöl-
mörgum greinum - t.a.m.
tungumálum. Til hans leit-
ar fólk á ýmsum aldri, allt
frá 12 ára.
Bréfaskólinn býður
námsráðgjöf. Margir nýta
sér hana því að ótal
spurningar vakna þegar
velja skal námsbraut.
Til að aðstoða nemendur
eru notuð kennslubréf
með leiðbeiningum, út-
skýringum, æfingum,
svörum og verkefnum
sem senda ber kennurum
skólans til yfirferðar og
umsagnar. Auk þess eru
notuð hljóðbönd, mynd-
bönd, símbréf og sími.
Námskeiðin eru mis-
jafnlega dýr. Þau kosta
frá 7 til 12 þúsund krónur.
2A. Fyrirtækin Módel-
samtökin (s. 687480),
Módel 79 (678855) reka
tiskusýninga- og fyrir-
sætuskóla; einnig er til
Fyrirsætuskrifstofan
„Wild“ (s. 622599).
2B. Til að læra Ijós-
2 2 Æ S K A N