Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1911, Side 125
ÁGRIP
af reglugjörð um heimilsréttarlönd í
Canada Norðvesturlandinu.
Sérhver manneskja, sem fjölskyldu hefir fyrir að sjá, og sérhver
karlmaður, sem orðinn er 18 ára, hefir heimilis rétt til fjórðung's úr
,,section“ af óteknu stjórnarlandi í Manitoba, Saskachevvan eða
Alberia. Umsækjandinn verður sjáfur að koma á landskriftstofu
stjórnarinnar eða undirskriftstofur því héraði. Samkvæmt umboði
og með sérstökum skilyrðum má faðir, móðir, sonur, dóttir, bróðir
eða systir umsækjandans, sækja um landið fyrir hans hönd á hvaða
skrifstofu sem er.
Skyldur.— Sex mánaða ábúð á ári og ræktun á landinu í þrjú ár.
Landnemi má þó búa á landi,innan 9 mílna frá heimilisréttarlandinu,
og ekki er minna en 80 ekrur og er eignar og ábúðarjörð hans eða
föður, móðir, sonar, dóttur, bróðvir eða svsturhans.
I vissum héruðum hefir landneminn, sem fullnægt hefir landtöku
skyldum sínum, forkaupsrétt (pre-emption) að sectionarfjórðungi
áföstum við land sitt. Verð $3 ekran. Skyldur:— Verður að sitja
6 mánuði af ári á landinu í 6 ár frá því er heimilsréttarlandið var
tekið að þeim tíma meðtöldum er til þess þarf að ná eignarbréfi á
heimilsréttarlandinu, og 50 ekrur verður að yrkja aukreitis.
Landtökumaður, sem hefir þegar notað heimilisrétt sinn og getur
ekki náð forkaupsrétti (pre-emption) á landi, getur keypt heimilis-
réttarland í sérstökum héruðum. Verð $3 ekrari. Skyldur:
Verður að sitja 6 mánuði á landinu á ári í þrjú ár, rækta 50 ekrur
og reisa hús, $300.00 virði.
W. W. CORY,
Depuly of the Minister of the Interier.