Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1946, Qupperneq 47

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1946, Qupperneq 47
ALMANAK 47 var hvortveggja að séra Friðrik var frábær kennari og líka hitt að heimakensla sú er hann veitti opnaði mörgum efnilegum ungling tækifæri til náms, sem annars hefði farið þess á mis. Þegar góð byrjun var fengin og öflug hvatning, snéru fáir aftur nema einkis annars væri kostur. Jóhannes bar gæfu til þess að vera studdur til náms áfram af foreldrum sínum. Sókti hann Gustavus Adolphus College í St. Peter, Minnesota, og útskrifaðist þaðan með B. A. mentastigi vorið 1901. — Samhliða námi hafði hann af og til frá því hann var sextán ára gamall fengist við kenslu við bamaskóla í heimabygð sinni. Féll honum starfið mjög vel og naut hylli sem kennari. Að loknu námi var því lífsstaðan sem sjálfkjörin. Gerðist hann skólastjóri að Mountain og hélt þeirri stöðu um tug ára við bezta orðstýr. Hann hafði frábært lag á því að glæða áhuga og mentafýsn hjá æskulýðnum, og urðu þeir marg- ir er töldu það hið mesta lán sitt að hafa notið hans sem kennara. Tók hann einnig mjög tilþrifamikinn þátt í félagslífi bygðarinnar. Hann hafði áreiðanlega lent á rétta hyllu í lífinu. Hann var vígður starfinu til lífstíðar. Eftir að hann hvarf úr heimabygð sinni veitti hann forstöðu skólum í Inkster og LaMoure í Norður Dakota og í háskólabænum Vermillion í Suður Dakota. Auk þess var hann um hríð aðstoðar eftirlitsmaður skóla (Deputy County Superintendent) í Grand Forks sveit (County) í Norður Dakota. Stundaði hann jafnhliða áframhaldsnám við ríkisháskólann þar og tók meistarapróf (M.A.) í sögu. Hann tók ástfóstri við þá námsgrein og kendi á því sviði ætíð síðan. Hann kaus að hverfa frá skólastjórn til þess að gefa sig óskiftan að kenslu. Það leiddi til þess að árið 1923 færði hann sig til Chicago. Var hann þar kennari fyrst um langt skeið við Harrison Technical High School, og síðan við Steinmetz High School. Við síðari skólann, sem er einn af stærstu miðskólum borgarinnar, skipaði hann forstöðu í sögudeild skólans (Head of the Social
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.