Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1946, Blaðsíða 49
ALMANAK
49
meðlimimir á undan fundi kvöldverðar saman í norska
klúbbi borgarinnar. Á hverjum fundi flytur kjörinn meðl-
imur erindi um efni er hann hefir tilkynt á næsta fundi
á undan. Röðin kemur að hverjum meðlimi sem næst
einusinni á ári. Erindið og efni þess er svo rætt af fundar-
mönnum. Mannval er hið mesta í hópnum, svo mörg
hugðnæm erindi eru flutt og umræður fjörugar og vekj-
andi. Ekki er neitt jábræðrasnið á því sem fram fer. Það
eru óskrifuð lög að allir tali fullum hálsi, og að enginn
liggi á skoðun sinni. Mjög frábreyttar skoðanir um mörg
efni ríkja meðal meðlimanna, svo oft verða allsnarpar
deilur. Ber það við að menn ganga í skrokk hver á öðmm
all-óþyrmilega, en alt þó í mesta bróðerni. Má telja það
holla reynslu að eiga hlutdeild í slíku. Allir meðlimir
klúbbsins eru íslenzkir, en erindin og umræður yfirleitt
á ensku. Fundir eru sóktir af stakri reglusemi. — Jóhannes
var máttarstólpi þessa félags frá byrjun og átti mikinn
þátt í að marka feril þess. Þetta er áreiðanlega markvert
fvrirbrigði í sögu vestur-íslenzkrar menningar.
Síðustu sjö árin var Jóhannes mjög farinn að heilsu.
Hann varð fyrir slagi og náði sér aldrei aftur til fulls. Eftir
sex mánaða uppihald tók hann aftur að kenna. Einnig
hélt hann áfram rækt sinni við félögin íslenzku, en nú
varð hann að halda aftur af sér og gæta kraftanna. Auróra
systir hans hélt heimili með honum, og hennar frábæra
ræktarsemi var honum hin mesta hjálparhella. Hún vakti
yfir velferð hans og lét ekkert á vanta að þjóna hverri
hans þörf. Hún er áfram til heimilis í Chicago. Einn
bróðir er á lífi, Aðalsteinn gullsmiður í Devils Lake,
North Dakota. Systur hans nú látnar, Petrína kona Jóns
Thorlakssonar um eitt skeið í Winnipeg, og Friðrika kona
séra Kristins K. Ólafssonar.
Með Jóhannesi Björnson er fallinn atkvæðamikill
kennari, ötull forystumaður í félagsmálum, sannur Isl-
endingur og drengur hinn bezti.