Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1946, Blaðsíða 87
ALMANAK
87
Austurdal í Seyðisfirði í Norður-Múlasýslu 7. maí 1876. For-
eldrar: Björn Guðmundsson Austmann og Guðrún Jónsdóttir.
Fluttist með þeim til Ameríku 1886.
13. Þuríður Eyjólfsdóttir Guðjónsson, (ekkja Guðjóns Guðjónsson,
d. 1911) að heimili fósturdóttur sinnar að Gimli, Man. Fædd
20. nóv. 1869 að Tröðum í Hraunhreppi í Mýrasýslu. Foreldr-
ar: Eyjólfur Gíslason og Margrét Sigurðardóttir. Fluttist til
Canada árið 1902.
13. Marteinn Johnson, að heimili dóttur sinnar í Vancouver, B.C.
Fæddur að Óttarstöðum í Svalbarðshreppi í Þistilfirði 9. jan.
1855. Foreldrar: Jón Jónsson Þorsteinssonar og Margrét Jóns-
dóttir Jónssonar. Fluttist til Canada árið 1878. Hafði um langt
skeið verið búsettur í Nýja-lslandi og síðan vestur á Kyrra-
hafsströnd. (Smbr. æfisögu sjálfs hans í Alm. Ó.S.Th. 1937.
13. Jakob F. Bjarnason, á Grace sjúkrahúsinu í Winnipeg, Man.,
69 ára. Fæddur í Kinmount, Ont., á fyrstu Iandnámsárum
íslendinga þar, en fluttist á barnsaldri með foreldrum sínum
til Gimli. Ilafði átt heima i N. Dakota, Wynyard, Sask., og
síðari ár í Winnipeg. Kona hans, Vilborg Gísladóttir, systir
þeirra skáldanna Þorsteins ritstjóra í Reykjavík og Hjálmars í
Winnipeg, látin fyrir nokkrum árum.
14. Hallfríður Gísladóttir Baldwin, (kona Ásgeirs V. Helgason
Baldwin), að heimili sínu við Campbell River, B.C. Fædd 10.
júní 1865. Foreldrar: Gísli Tómasson, bóndi í Efra-Nesi í
Stafholtstungum í Borgarfirði syðra, og Margrét Jónsdóttir af
Akranesi. Fluttist vestur um haf til Ontario með foreldrum
sínum á fyrstu landnámsárum.
20. Valgerður Einarsdóttir Erlendsson (ekkja Ingimundar Erlends-
son, landnámsmanns nálægt Reykjavík, P.O. í Manitoba, d.
1937), á heilsuhæli í Winnipeg, Man. Fædd 25. des. 1855 í
Drangshlíð undir Eyjafjöllum í Rangárvallarsýslu. Foreldrar:
Einar Kjartansson prests í Skógum undir Eyjafjöllum og Helga
Hjörleifsdóttir. Kom til Vesturheims með manni sinum 1887
og áttu lengst af heima við Manitoba-vatn.
20. Ketill Valgarðsson, landnámsmaður, að lieimili sinu á Gimli,
Man. Fæddur að Kolgröfum í Eyrarsveit í Snæfellsnessýslu
29. okt. 1861. Foreldrar: Valgarður Jónsson, lengst bóndi að
Akurtröðum í Eyrarsveit, og Kristín Brynjólfsdóttir. Fluttist
vestur um haf til Nýja-íslands með föður sínum árið 1878.
Áhugamaður um félagsmál; meðal bama hans er Valentínus,
skólastjóri og bæjarfulltrúi í Moose Jaw, Sask.
27. Jón Guðbjartsson Patrik, á sjúkrahúsi í Selkirk, Man. Fæddur
12. okt. 1900 í Breiðuvík í Rauðasandshreppi í Barðastrandar-
sýslu. Foreldrar: Guðbjartur Jónsson og Sigríður Össursdóttir.
Fluttist til Canada ásamt móður sinni og systkinum árið 1911.
28. Tryggvi Pálsson, í Grafton, N. Dak. Fæddur 31. maí 1863 að