Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1946, Side 70
70
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
sérstaklega 25 ára afmælis deildarinnar “Frón” í Winni-
peg, en Guðmann Levy er forseti hennar.
28. febr.—Vilhjálmur Þór, fyrrv. utanríkisráðherra
Islands, Einar Jónsson myndhöggvari, og Gísli Jónsson,
ritstjóri “Tímarits” félagsins og einn af elstu starfsmönn-
um þess, ritari um mörg ár, kosnir heiðursfélagar í Þjóð-
ræknisfélaginu.
5. marz—Stórblaðið “New York Times” skýrir frá því,
að Birgir Halldórsson, hinn efnilegi tenórsöngvari, hafi
sungið þar í borg einsöngva við ágætan orðstír, á söng-
hátíð, er helguð var minningu Masaryks, stofnanda og
fyrsta forseta tékkneska lýðveldisins.
Marz—Sextíu ára afmælis “Sameiningarinnar” minnst
með útgáfu fjölbreytts og vandaðs afmælisheftis. Fyrsti
ritstjóri hennar og sá maðurinn, er setti svip sinn á ritið
um langt skeið, var dr. Jón Bjamason; núverandi ritstjóri
er séra Sigurður Ólafsson, sóknarprestur í Selkirk, Man.
Marz—Við marz-prófin á Success Business College í
Winnipeg skaraði Dorothea Margrét Ólafson (dóttir Mr.
og Mrs. E. M. Ólafson í Winnipeg) fram úr öðmm nem-
endum í hraðritun, með þeim árangri, að félagið “The
Business Educators’ Association of Canada” sæmdi hana
demants-heiðurspeningi fyrir frábæra frammistöðu.
Marz—Um það leyti kom út mikil og vönduð kennslu-
bók í íslenzku fyrir enskumælandi menn, “Icelandic,
Grammar, Texts, Glossary”, eftir dr. Stefán Einarsson,
prófessor í norrænum fræðum við Johns Hopkins háskól-
ann, um margt ítarlegasta rit af því tagi, sem hlotið hefir
ágæta dóma fræðimanna.
9. apríl—Mrs. Björg V. Isfeld kosin forseti Winnipeg-
deildar Hljómlistarfélags Manitoba (Registered Music
Teachers Association) á fundi stjómamefndar félagsins í
Winnipeg.
26. apríl—Heimsóttu Landstjóri Canada, Jarlinn af
Athlone, og frú hans, Alice prinsessa, byggð Islendinga í