Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Blaðsíða 30
26
þangað til 1862, þvi þá, í'ór hann til Englands til að gefa
út hið íslenzka nýa testamenti og hiblímia fyrir brezka
og erlenda bibliufélagið.
Árið 1863 fór hann til Frakklands og ferðaðist um
landið alt suður iAuvergne ; árið eptir fór hann til Þýzka-
lands og ferðaðist þar aptur og fram, en dvaldi þó um
nokkra mámuði i Leipzig og heyrði fyrirlestra i málfræði
við liáskólann. TJm vorið 1865 ferðaðist hann til Dan-
merkur, þaðan til Iiollands og Belgiu og settist að í
París undir haustið. Vorið 1866 flutti hann aptur alfar-
inn til Englands og hefir verið þar heimilisfastur siðan.
Árið 1871 var hann valinn undirbókavörður við bóka-
safn háskólans i Cambridge, en ekki var þó alt fengið
með kosningunni, þvi bæði er það, að útlendingar yfir
höfuð standa lakar að vigi en innlendir til embættis-
frama, enda bættist hér við, að yfir- bókavörður hafði
staðið með, að annar yrði fyrir vali, og í'ailið þimglega
er svo varð ekki. Átti þvi Eiríkur erfitt uppdráttar
framan af við safnið, og það því heldm-, sem hann vildi
liaga niðurröðun og flokkun bókasafnsins öðruvísi en
bókavörður, og gerði það að kappsmáli. Kom það [ýrir
stjórnendur bókasafnsins og féllust þeir á uppástungu
Eii-íks og var honum falið á hendur að semja reglur
fyrir skrásetningu bókanna og bera sig saman við bóka-
vörð um þær. Samdi liann svo reglurnar, en ekki urðu
þær löggiltar fyr en 1876, þá varð mótspyrnan að lokum
sigruð. Sama ár í okt. var Eirikur gerður Maste>• of
Arts (meistari) propter nierita (sakir verðleika) og veitt
öll háskólaréttindi. Sfðan liefir hann lifað i bezta og
vinsamlegasta samkomuiagi við bókavörð og alla þjóna
safnsins. 1878 fékk hann vísindalegan féstyrk til að fara
til Norður'anda að rannsaka rúnastafi, ogliggur árangur-
inn af þeirri ferð enn þá fyrir i bókasafninu i Cambridge,
bæði liandritaðar skýrslur og ljósmyndasafn mikið. Að
liann sé í áliti1 og málsmetandi við háskólann í C. má
1) Árið, som leið, var sampykt 1 liáskölaráðinu að hœkka laun hans,
sem hingað t.il voru að eins 250 pd. sterl. (4500 kr.), Jietta ár með 50
pd. sterl. (900 kr.) til viðurkenniugar fyrir starfsemi hans við böka-
safnið, og á að hœkka J>au enn 'fremur tvisvar um 50 pd. st-erl., pang-
að til ]>au verða 400 pd. sterl. (7,200 kr.)