Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Qupperneq 34
30
sig einkum eptir skorkvikinda-fræði, og jafnframt jarðfræði,
en þó hefir hann sj&lfur sagt, að hann hafi ekki um þessar
mundir iðkað vísindan&mið nema sér til skemtunar, og
ekki með nægum visindalegum áhuga eða djúpfæmi; hann
hafi í þá daga að eins elskað n&ttúruna og verið ákafur
veiðimaður, en starfsmaður enginn, fyr en liann var kom-
inn á annað ár um tvítugt, en þ& hafi hann líka tekið
til verka af öllum hug og allri dáð. Árið 1831 er merkis-
árið í æfi hans; þá sagðist hann hafa byrjað nýtt líf og
verulega farið að mentast. Með þeim tíma hefst hans
dæmaf&a vísindalega starfsemi.
Um þetta leyti gerði enska stjórnin út briggskipið
„Beagle“ í strandmælinga-ferð til Eldlandsins, Patagóniu,
Chili, Perú og nokkurra eyja í Kyrra hafinu, enjafnframt
var ætlunarverkið, að gera ýmsar lengdarmælingar víðs-
vegar á jarðhnettinum. Fyrirliðinn & skipinu, Pitzroy,
vildi fá vísindalega mentaðan félaga með sér og bauð
ókeypis ferð og kost ogvistarveru í káetu sinni. Þegar
D. varð þess vis, gaf hann sig undir eins fram, þó kjörin
hefðu mátt vera betri; kvaðst hann vera fús að fylgjast
með. en þó að eins með því skilyrði, að allir safnmunir
yrðu sín eiginleg eign, og að þessu skilyrði gekk sjóliðs-
stjórnin þegar í stað. Pörin stóð yfir frá 27 des. 1831 til 2.
okt. 1836 og gekk stórslysalaust frá bytjun til enda. Á-
rangur hennar varð inn bezti og ríkulegasti, og inum
mestu vísindamönnum kom saman um, að in stórkostlegu
söfn, er D. kom heim með, og ferðabækur hans og skýrsl-
ur og athuganir, gerðu förina að einhverri inni mestu
merkisfór, sem farin hefði verið í þarfir vfsindanna. Þegar
D. var heim kominn, fór liann til London og var þar f
þrjú ár að raða og skipa niður náttúrusöfnum sínum og
ljúka við dagbækur sínar. Frá London fór hann til móð-
urbróður síns, er bjó í Stafford-skíri, og dvaldi hjá honum;
gekk hann þar að eiga dóttur hans og náfrænku sína
Emma Wedgwood. Þau áttu böm saman, fimm sonu
og tvær dætur.
Heilsa Darwins hafði á æskuárunum verið in bezta, eins
og fyr er getið, en svo hefir hann sjálfur sagt, að frá ár-
inu 1840 liafi henni hrakað. Hann hafði á inni löngu