Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Side 35

Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Side 35
31 sjóferð verið síþjáður af sjósótt og legið íimm vikm' rvun- fastur í Valparaiso. Þar að auki mun honum hafa gert nokkuð, að skiparakosturinn átti illa við hann, af þvi hann var honum með öllu óvanur, og eins er það líklegt að hann hafi ofreynt sig í inum vísindalegu leitar-ferð- um, er hann fór á landi. Sakir þessarar heilsubilunar og með fram til að geta iökað visindi sín í fullum friði, þá réð hann það af skömmu eptir giptinguna, að draga sig út úr inu borglega félagslifi og flutti til þorps nokkurs er Down heitir (í Kent) og liggur í landsuður frá London. Þar lifði hann til dauðadags með konu sinni og hörnum i fullkomnu næði, og gaf sig allan við vísindalegum rann- sóknum og ritverkum, og þar vann Jiann ótrauður að inu mikla verki, að safna röksemdum á reynslunnar vegi fyrir þeirri skoðun sinni, að allar dýra og plöntu myndir seu upprunnar og œttaðar frá fáum frummyndum; en þá hug- mynd fékk hann fyrst við rannsóknir sínar á dýrakyn- inu í Patagóníu 1833. Við heimili sitt í Down lagði liann svo tugum ára skipti stund á að tímga bæði dýr og plöntur með miklum umbúnaði, til þess að athuga ná- kvæmlega æxlunina, tilbreytinguna og lifnaðarliáttinn, og prófa þar með verklega kenningu sína um uppruna og þróun allra dýra og plantna yfir liöfuð, en hún er sú, að dýr og plöntur geti látið tegundarmarkið ganga 1 erfð til afkvæmisins, en jafnframt, lika afkynjazt frá tegund sinni sökum breyttra lífskjara og baráttunnar fyrir tilverunni; eins líka að náttúran velji sum kynferði til að varðveitast gegn um þessa baráttu. Það er mjög merkilegt og einkennilegt fyrir D., að hann heið í tutt- ugu ár, sem hann har þessa kenningu algjörva innan brjósts, án þess að lýsa yfir henni á prenti. Hann vildi altaf treysta hana með sterkari og sterkari rökum. Pyrstu yfirlýsing um hana lét hann koma 1. júll 1858, en þó ekki með ljúfum vilja, því það var með mestu herkjum að tveir vinir hans, jarðfræðingurinn Chai-les Lyell og grasafræðingurinn Josepli Hooker gátu fengið hann til þess. Þannig lifði þessi mikli maður allan efri hluta æfi sinn- ar sönnu vísinda og rannsóknar Hfi, lausjvið heimsglaum-

x

Almanak fyrir hvern mann

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak fyrir hvern mann
https://timarit.is/publication/405

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.