Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Page 40

Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Page 40
34 komnunar braut. Fyrir þesaari kenningu hefir D. fært svo öflugar röksemdir, að færri munu þeir nú orðið, er •efast um gildi hennar. Eins og fyr er 4 vikið, er það skoðun D., að dýra- og plöntulíf jarðarinnar sé kynjað frá örfáum frumlegum h'fsmyndum’ og þær hyggur liann séu aptur framkomnar af inum lægstu og einfóldustu lífsmyndunum, sem hafa þróazt um þúsundir og hundrað þúsundir ára. Ýmsir af áhangendum hans bygðu á þessu þá kemiingu, að maðurinn sé nánast í ætt kominn frá hryggdýrunum, og þá helzt öpunum, en D. leiddi það umtalsefni lengi hiá sér, þangað tilhann árið 1871 gaf útbók sina um „ættar uppruna mannsins1 11 (Desceid of Man), sem inniheldur skoðun hans um það mál. Segir hann þar, að maðurmn liafi verið og sé ftamvegis undirorpinn sama vaxtar lög- máli, sem allar aðrar dýramyndanir, |og muni smásaman ú óralöngum tíma hafa æxlazt út frá lægri hryggdýrum og likast til af apa- llkum spendýrum. Fyrir þessu færir hann mörg rök og endar með rannsókn um það, að hve miklu leyti inar andlegu einkunnir geri staðfest djúp á milli mannsins og dýrsins. Það er vitaskuld, að eins og kenning D. samrýmist ekki við ina almennu eldri vísindalegu skoðun, eins lítt eða enn þá miklu síður samrýmist hún við biflíuna og frásögn hennar um samtíða sköpun alheimsins og als þess, er lifir. Það liefir þvi ekki vantað, að margir hafa orðið til að áfella og ófrægja kenningu D. og sjálfan hann með af síðamefndri orsök. En D. hefir aldrei sjálfur með einu orði áreitt biflíu, trúarbrögð né kirkju. Hann liefir að eins rannsakað sem visindamaður og grenslazt eptir sannleikanum, og það, sem hann hefir fundið rétt- ast, hefir hann eptir grandgæfilega prófun lagt fram fyrir inn mentaða heim, vísindunum til endalausra fram- fara og sjálfum sér til ódauðlegrar frægðar. 1) Lik skofrnn liaföi reyndar áður veriS framsett af ýmsum, þar á muSal Aristóteles, Goethe og Lamarok, en það er D. sem fyrstur hefir afiat henni vísindalegrar viðurkenningar, þó hún reyndar enn 1 dag aigi s6r noltkra mótmælendur.

x

Almanak fyrir hvern mann

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak fyrir hvern mann
https://timarit.is/publication/405

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.