Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Síða 42

Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Síða 42
36 samboðinn verði báðum okkr“. Þetta virðist djarflega vonað, þar sem drengrinn var ekki nema sex ára; en vonin rættist að fullu. Þá er faðir hans hafði fengið embætti í Indlands- stjóm- inni (India house), jukust svo annir hans, að hann varð að hætta við að kenna sjálfr syni sínum. John Stuart var ])á (1820) 14 ára. Yar hann ])á sendr til Frakklands til náms og dvalar um hálft annað ár, og dvaldi mikið af þeim tíma hjá inum nafnkunna þjóðmeganfræðingi Jean Baptiste Say. Uppeldið á John Stuart Mill var nokkuð einkennilegt og alveg lagað eftir heimspekilegum reglum. Honum var engin trú innrætt, öðruvísi en hvað liann var fræddr um lielztu trúarbrögð bæði i fornöld og á samtíð hans, alveg eins og vér lærum aðalatriði einliverrar goðafræði. Alt var til þess gjört, að menta skynsemi hans og hjarta, en forðast að innræta honum alla fordóma, svo að hann gæti siðar meir með sem óháðustum anda myndað sér sina lífsskoðun, og sjálfr kosið eða hafnað með skynsemd i trúarlegum eíimm. Hver álirifþetta uppeldi hefir haft á hann í trúar-efnum, má sjá í bók þeirri „um trúna“, sem fanst eftir hann látin og var gefin út. En hver áhrif uppeldi föður hans hafði haft á all a hugarstefnu hans og hugsun, þess ber hver lina merki af öllu, sem hann hefir ritað; þó, eí til vill, ekkert eins og bók hans „um frelsið11; slíkt hlutdi ægnisleysi í rannsóknum og samvizkusemi, sá skarp- leiki i ályktunum og allri hugsun, sá mannúðar-andi og umhurðarlyndi, sem lýsir sér i bókum hans, þetta finst ekki alt til samans mér vitanlega til nokkurra lika hjá neinum öðrum manni. Snemma árs 1822 kom J. St. M. til Lundúna aftr, og fékk liann þá skömmu síðar embætti í Austindia-félaginu í stjórnardeild þeirri, er faðir hans stýrði. 35 ár samfleyt.t var hann i þjónustu féiagsins, og sýndi þar svo mikinn embæt.tis-dugnað, að liann hófst smátt og smátt frá inu lægsta embætti til eins ins liæsta. Hann komst þannig ungr í embætti, en hann hætti eigi að nema fyrir þvi; liann var þeirrar trúar, að „svo lengi lærir sem lifir“,

x

Almanak fyrir hvern mann

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak fyrir hvern mann
https://timarit.is/publication/405

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.