Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Side 46

Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Side 46
40 um „Undirokun kvennjjjóðarínnar11 („On thc Subjection of Womcn“) 1869. Eftir hann látinn kom út æflsaga lians eftir sjálfan hann og „þrh' þættir um trúna“ (1. um náttúruna. 2. um nytsemi trúarbragðanna. 3. um guðstrú.). Þegar á borgara-styi-jöldinni stóð í Ameríku, fylgdi Mill rás viðburðanna með inni mestu atliygli og áliuga og var það svo sem auðvitað, að hann tók í hvívetna máli Norðrríkjanna, og hélt hann því fast fram máli þeirra, er þrælunum vildu frelsi gefa. Iiann hafði á- valt haft inn mesta áhuga á stjórnmálum, og það var eins og þessi áliugi yrði því fjöragrí og öflugri, sem nær dróg æfilokum lians. Það var þvi ekki að undra, þótt þeir menn af verkmanna flokki og flokki inna frekgengustu frelsismanna, er virtu hann og mikils-mátu, livettu hann sterklega til að gefa kost á sér til þing- mensku í Westminster 1865. Sú kosning mun leugi uppi verða, þvi lhin er fyrsta dæmi svo að segja, sem menn þekkja til þess, að maðr hafi mútulaust náð kosn- ingu á Englandi. Á þingi flutti hann ýmsar merkilegar ræður; og þó að hann hefði eigi þau áhrif á þingi, sem mannkostir hans og vitsmunir áttu skilið, af því að inum vanaföstu Englendingum þóttu skoðanir hans helzt til frálslyndislegar, þá báru allir flokkar á þingi ina mestu virðingu fyrir honum. Hann varð fyrstr manna til að bera fram á þingi kvennfrelsismálið, og er svo sagt, að mál það væri þá í svo mikilli fyrirlitningu í Englandi, að engum öðrum en Mill mundi liafa tjáð að biðja sér hljóðs um það; að hverjum öðrum þing- manni mundi hafa verið skellililegið, þangað til hann þagnaði; en þegar hann talaði, þögnuðu allir; þeirafvinum lians, sem beztar vonir gjörðu sér, bjuggust við 20—:i0 atkvæðum; en allir urðu hissa þegar 74 þingmeim greiddu atkvæði með Mill. Síðan liefir kvennamálinu þokað mik- ið áleiðis í Englandi: konur hafa fengið atkvæði í sveitamálefnum, þær eru orðnar kjöi’gengar í skólanefnd- ir, og fjái-ráðum giftra kvenna er nú"skipað að lögum. Áhrif Mills á endrbætr á lífskjörum kvenna yfir höfuð eru ómet.anleg. Alla æfi sína áleit hann kvennamálið

x

Almanak fyrir hvern mann

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak fyrir hvern mann
https://timarit.is/publication/405

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.