Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Síða 47

Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Síða 47
41 eitt ið þýðingarmesta mál, er hann starfaði að; og þó að hann yæri ekki endrkosinn við næstu kosningar, þá eru áhrif þau, sem hann hafði með þvi, að koma þessu rnáli 4 rekspöl, næg til þess, að kalla þingmensku hans ina heillaríkustu og sigrsælustu. En yíir höfuð má segja það sama um öll þau stjórnmál, sem Mill lagði sig fram i af alhuga, að í þeim öllum hafði hann stór- vægileg áhrif á sögu samtíðar sinnar, og það ávalt i þá stefnu, sem hann óskaði. Hve mikils Gladstone mat Mill sem þingmann, má marka af þvi, að hann sagði um Mill, að hlænum á ræðum þingmanna í parlamentinu færi ævinnlega merkjanlega aftr bæði í kurteisi og skyn- semi þegar Mill væri ekki við staddr. Mill andaðist 8. maí 1878. TJm það her öllum saman, að Mill var inn gæfasti maðr og vandaðasti og postuilega hreinlifr í öllu dag- fari. í umgengni var liann inn ástúðlegasti og skemti- legasti; hann var hlátt áfram og náttúrlegr, og lét aldrei mikið yfir sjálfum sér. Það yar ekki hans vani, að gefa mönnum undir fótinn, að hann væri samtiðar sinnar mesti hugsanfræðingr, frumspekingr, siðfræðingr og þjóðmeganfræðingr, og þó var hann þetta alt. Hve fjöl- liæfr haxm var í nálega öllum vísindagreinum, er varla unt að lýsa. Iíenry Fawcett, prófessor i Camhridge, þingmaðr og ráðherra, segirafhonum þessa sögu: Fyrir nokkrum árum har svo til, að ég átti tal við þrjá vis- indamenn; einn var stærðfræðingr, annar fommálafræð- ingr og inn þriðji lifseðlisfræðingi- (physiolog). Yér vór- um að tala um víglsuræðu þá, er Mill hafði haldið sem rektor St. Andrew’s- háskólans. Stærðfræðingrinn sagðist aldrei hafa lieyrt svo ljóslega lýst gagnsemi stærðfræðar- námsins, sem í þessari ræðu; fommálafræðingrinn sagði ið sama um fomu málin og lifseðlisfræðingrinn sagði einnig ið sama um náttúruvisindin. Að lokum skal ég geta þess, liversu Mill varði eigum sínum eftir sig látinn, þvi að hann dó barnlaus. í arf- leiðsluskrá þeirri, sem hann gjörði, ánafnar hami J* st. 3000 (=54000 kr.) þeim háskóla á Bretlandi, er fyrstr leyfi kon- um aðgang til embættisprófa; sama liáskóla gaf hann enn

x

Almanak fyrir hvern mann

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak fyrir hvern mann
https://timarit.is/publication/405

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.