Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Side 52
46
seðlum; utan um borðið stóðu ó, gólfinu ó að gizka einir
fimm til sjö menn; ég man ekki til að ég teldi þá. Þeir
voru auðsjáanlega að spila um peninga við drukna inann-
inn.
„Þeir eru að flá liann“; sogir Þjóðverjinn, „það er ég
viss um“.
„Það er líklegt11, svaraði óg.
„Við skulum koma inn og horfa á að gamni okkar.
Viljið þið ekki drekka einn bjór með mér?“ sagði Þjóð-
verjinn.
Ég varð fyrstr til svars og afþakkaði; því ég hafði
ýmigust á húsinu.
„Einn vindil þá?“ sagði Þjóðverjinn og tók undir hönd
Páls, og fylgdumst við að allir inn og kveiktum í vindli
hjá Þjóðvorjanum.
Við horfðuin nú á spilið. Það virtist vera ofr einfalt.
Drukni maðrinn lagði upp nokkur spil, ég ætla 9 eða
12; sýndi, hver þau voru, og stokkaði svo, og lagði þau
svo upp á grúfu. Síðan gekk einn af áliorfendunum að
og leggr fingrinn á eitt spilið og segir t. d.: óg veðja
25 dollars uin, að þetta er spaðagosi (oða eitthvert ann-
að spil, sem hann tiltekr, af þeim, sem um er að gjöra).
Spilandi veðjar á móti ef honum sýnist; fletta þeir svo
við spilinu ogsjá, livor unnið hefir; or svona haldið fram
þar til þriðjungr spilanna (3 eða 4) eru upp gengin; þá
er stokkað um.
Drukni maðrinn var nú svo drukkinn, að þeir, sem við
liann veðjuðu, gengu að borðinu hjá honum, lyftu upp
röndinni á spilinu og gægðust, undir, svo að þeir sáu
spilið, og veðjuðu svo. Hann var of drukkinn til að sjá
þetta. Hann tapaði því hverjum 25 dollurunum á fætr
öðrum, og gryntist þvi nokkuð hrúgan lians á borðinu.
„Eigum við að spila?“ sagði Þjóðverjinn.—Ég neitti því
þverlega, og sagði honum að óg spilaði aldrei slík spil.
Hann gekk að borðinu, spilaði oinu sinni og vann 25
dollars.
Þeir Páll og Ólafr þinguðu um, hvort þeir skyldu
hætta á að reyna einu sinni. Eg fráréð þeim því fast-
lega og aftók að vera með þeim í því. Þjóðverjinn