Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Qupperneq 55
49
Slæpingalands. Á birkitrjánum og píltrjánum vaxa liveiti-
brauð, volg og glæný, og milli trjánna renna mjólkur-
lækir og detta liveitibrauðin niður í þá og blofcna þar af
sjálfum sór handa þeim, sem langar í þau. Þangað er
nú komandi fyrir kvennfólkið og bömin, vixmumenn og
vinnukonur. Heyrið þið, Jón og Manga! blessuð komið
þið með! Farið þið í hveitibrauðs-lækinn, en gleymið
ekki að hafa með ykkur stóra mjólkursleif.
Á Slæpinga-landi synda fiskarnir efst i vatnsbrúninni;
þeir eru þegar steiktir eða soðnir og synda rótt við bakk-
ann; en sé maður of latur og sannur Slæpingur, þá þarf
maður ekki annað en að segja „st! st!“, þákoma fiskamir
upp á land og hoppa í hendur honum, svo hann þarf ekki
einu sinni að beygja sig niður.
Og það megið þið hafa fyrir satt, að steiktir fuglar
fljúga þar í lopti, bæði gæsir og kalkúnar, geldhanar
og dúfur, lævirkjar og skógarþrestir, og þyki manm' of
mikið erfiði að rétta út hendina til að ná þeim, þá fljúga
þeir líka sjálfkrafa í munninn. Spengrisimir þar era
afbragðs-góðir á ári hveiju, og ganga þeir aflir með
hnif f bakinu, svo hver, sem vill, geti skorið sór úr þeim
bita.
Ostarnir vaxa þar eins og steinar eða hellur og liggja
vfðs vegar um landið. í steina stað eru þar steiktir,
innan kræstir fuglar og pósteikur. Þegar rigningar eru
á vetrardaginn, þá rignir þar eintómu hunangi f sætum
dropum, sem ánægja er að sleikja, og þegar að snjóar,
þá snjóar hvítasykri, og þegar heglir, þá heglir ekki öðru
en sykurkúlum og brjóstsykrinum ljúfa saman við ffkjur,
rúsínur og möndlur.
Skógar eru miklir þar f landi og vex inn inndælasti
fatnaður á trjám og runnum, frakkar, kápur, vesti, treyur
og buxur; fötin eru alla vega lit, svört og græn og
gul, blá og rauð, og hver, sem vill fata sig, þarf ekki
annað en að fara á skóginn og grýta fótin niður með
steinum eða skjóta þau niður með hoga. Á víða vangi
vaxa falleg kvennklæði úr allavega litum silkivefhaði,
flauéli o. s. frv. Grasið er ekki annað en dýrindis bönd
með als konar skrautlitum og sum skattéruð. Á einir-