Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Page 56

Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Page 56
50 berjatrjánum vaxa brjóstnisti og gullnálar, og ekki eru á þeim svört ber, beldur ljómandi hvítar perlur. Á íuru- trjánum hanga kvennúr og kostulegar hálskeðjur. Á runnunum vaxa stígvél og skór, karlmannshattar og kvennhattar, stráhattar með fjöðrum og als konar höfuð- búnaður, sem prýddur er með paradísarfuglum, koli- bríum, demants-flugum, perlum, emalíu og gullbrydd- ingum. t þessu ágœta landi eru haldnir tveir stórmarkaðir með beztu hlunnindum. Sá, sem á gamla konu, sem honum leiðist, af því honum þykir hún ekki lengur vera nógu ung og fríð handa sér, hann getur haft konuskipti á markaði fyrir aðra unga og fríða og fær enda peninga í tilbót. Gamla og ljóta kvennfólkið er látið í uppyngingar-laug, sem er eitt af inum mörgu dýrindum þessa sældar- lands, og fylgir henni afarmikill máttur. í henni lauga sig inar gömlu konur svo sem þrjá daga, í mesta lagi fjóra, og verða við það að fríðum yngismeyjum seytján eða átján vetra gömlum. Mikið er lika af skemtunum í Slæpinga-landi. Sá, sem hér á landi hefir enga hepni með sér, hann hetír þar ið bezta gengi í spilum og skemtiskotum. Hér skjóta margir alla æfi fram hjá og hitta aldrei rnarkið, en sá, sem hæfir þar lengst frá inark- inu, hann fær hæsta vinning. Ekki mundi lieldur vera margt að því að vera þar fyrir svefnpurkumar, som hér á landi baka sér örbirgð með leti sinni og ómennsku, svo þeir verða gjaldþrota og komast á vonarvöl. Þarna i Slæpinga-landi fær maður spesíu fyrir hvern klukku- tíma svefn og einn ríkisdal fyrir hvern geispa. Sá sem tapar í spilum, fær aptur peninga í vasann. Drykkju- menn fá það bezta vín, sem til er, ókeypis og þrjú mörk að verðlaunum fyrir hvern teig, hvort. sem það eru kon- ur eða karlar. Sá sem gengur bezt fram í að narra og svíkja út úr öðrum, fær einn dal í hvertskipti. Enginn má gjöra neitt ókeypis ogsá, sem sagt getur stærsta lygi, fær spesíu í livert skipti. Hér eru svo margir sem ljúga, og fá þó aldrei neitt fyrir ómak sitt, en þar er lygin efst á blaði af öllum í- þróttum, og væri þar því gott að vera fyrir suma „pró-

x

Almanak fyrir hvern mann

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak fyrir hvern mann
https://timarit.is/publication/405

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.