Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Page 60
54
(Glycerin), sem ekki er blönduð með vatni, er og góð til
þess, því af henni verða ekki fitublettir, og hœgt að ná,
henni úr með þvotti.
Steinólia er góð til lireinsunar og fœgingar 4 velar og
grófari hluti af málmi.
Til að lcomastí þröng ntígvél eða setjaupp þröngva hanska
er gott að dreifa talkum á hvortveggja að innanverðu.
Að verja tréviðfúa. Til þess er gott að rjóðra tréð eða
viðinn steinolíu, einkanlega það tré, sem úti er og sætir
álirifum veðráttunnar. Steinolían gengur alldjúpt inn í
viðinn og hindrar að hann drekki í sig vatn, en það verð-
ur að rjóða hann tvisvar sinnum og varast að sólarbirta
komist að honum, fyr en hann er orðinn gegnsmitaður
af steinolíunni. Til að verja tréstaura, sem hleypt er i
jörð niður, er höfð þessi aðferð: Menn taka soðna lín-
olíu, hræra þar sarnan við smámuldu viðarkoli og maka
þar í þann hluta trésins, sem niður i jörðina á að fara.
Þegar rúmfót erw viðrvð, ætti ekki láta þau þar, sem
sólskin er mjög mikið, því þar við þornar fiðrið um of,
missir af fjaðurmagni sínu og verður stífara. Það er
því hetra, að viðra rúmföt þegar sólskin er ekki til
muna og berja vel úr þeim á eptir. Á sumrin þegar
útgufun líkamans er mest, ætti ekki að breiða yfir rúmið
eptir að það er uppbúið fyrri part dagsins, lieldur láta
yfirsængina vera slegna til hliðar svo alt rúmið viðrist
því betur, og eigi vel að vera, fyrir opnum glugga.
0, live skín þitt andlit hýrt
TJndan bólsturmökkva,
Signað tungl, og svífur slcýrt,
Silfrar flóha dökhva;
Við þitt skin mér verður fritt,
Vil eg til þín flýa,
Sýn niér dásamt draumland þitt,
Dýrðarheima nýa,—
Tunglið, tunglið, tunglið mitt,
Tak mig upp til skýa!