Afturelding - 01.04.1979, Side 17

Afturelding - 01.04.1979, Side 17
Kristm Jónsdóttir: Skírn Heilags Anda Náð mín nægir þér. Þessi dásamlegu orð, sem ég hefi kosið að hafa sem yfirskrift vitnisburðar míns, og sem líka hafa verið yfirskrift lífs míns, voru svar við ákveðinni bæn Páls postula (II.Kor. 12;9). Mörgum sinnum hafa þessi orð blessað mig, í blíðu og stríðu; versið er líka lengra: „Því að mátt- urinn fullkomnast í veikleika, til þess að kraftur Krists megi taka sér bústað í mér“. Þessi blessaði, lyftandi, berandi kraftur. 1 æsku minni þráði ég mjög að eiga afgerandi, lifandi samfélag við Frelsara minn, en ég vissi ekkert hvernig ég gæti eignast það. Það var ekki talað svo mikið um það þá og ég vildi engan spyrja. En náðin nægði mér. Með því að taka mér tíma á hverjum degi, til að lesa Guðs Orð og biðja, þá skeði e>tthvað innra með mér. Hann endurfæddi mig með Orði máttar síns og gaf mér fullvissu, og frið og gleði etns og við syngjum í þessum kór: Hann snart mig, ó hann snart mig, og friður fyllti mína sál. Eitthvað gerðist, ég veit það nú. Hann snart mig og gaf mér trú. Það var einmitt svona! En samt, mig vantaði eitthvað meira. Ég gerði mér ekki beint grein fyrir hvað það var, en „hjartað þráir meira, sem er að nýju fætt“. Svona liðu 7 ár. Þá var það eitt kvöld að það kom til mín kona, sem ég þekkti, Kristín Sæ- munds hét hún. Hún sagði mér að fólk á okkar dögum öðlaðist Heilagan Anda á sama hátt og postularnir. Hún sagði að í Reykjavík væri búið að stofna Hvítasunnusöfnuð og hún tilheyrði þeim söfnuði nú. Hún var svo glöð og lifandi og blessuð að ég hafði aldrei séð hana eins. Ég spurði um orsökina að gleði hennar og hún svaraði; Ég er skírð í Heilögum Anda. Þá vissi ég hvað það var sem mig vantaði. Þetta varð ég að eignast. Svo kom að því að við hjónin fórum að sækja samkomur og sama vorið tókum við Biblíulega skirn og sameinuðumst þess- um söfnuði, og allt varð nýtt og blessað og gott. En þessi brennandi þrá eftir Heilögum Anda fór vax- andi en ekki minnkandi, mér fannst ekkert nauð- synlegt nema það og ég bað og bað. Nói beið í 7 daga eftir að vatnið sjatnaði, en ég beið í 7 ár eftir blessunardöggum frá Himninum. Svo fór ég í fyrsta sinn á vormót Hvítasunnu- manna á Akureyri. Þá gerðist það á bænastund á laugardagsmorgni að einn maður skírðist í Heilög- um Anda. Hvað mér fannst það dásamlegt og ég fór að lofa Drottin.Þá komu fyrstu blessunardaggirnar yfir mig, þvílík sæla. í heilan mánuð lifði ég í þessu orði; Hvað sem þér biðjið um í mínu nafni, þá trúið að þér hafið öðlast það og þér munuð fá það. Ég held að það hafi verið tæpum mánuði seinna, þegar ég var að biðja kvöldbænina mína, að allt í einu var eins og Himininn opnaðist yfir mér og blessun og bænarandi helltist yfir mig. Það er ekki hægt að lýsa því, öll orð verða svo litlaus. En þá fékk ég að reyna hvernig Andinn biður með mínum anda og hann vegsamaði Krist. í þrjá daga var ég í þessari andlegu veislu. En þá braust fram nýtt tungutal með lofgjörð og tilbeiðslu. Seinna fékk ég líka útlegging tungna, það gerðist líka á bænastund. Fáeinar kon- ur voru að biðja fyrir veikum manni, þá fór ég allt í einu að tala tungum og leggja út, mér sjálfri til mestu furðu. Því ómælt gefur hann Andann. Og þetta er sami Heilagi Andinn, sami kröftugi mátt- urinn, sem uppvakti Jesúm frá dauðum. Dýrðlegt er að vera innsigluð með Heilögum Anda. I Efesus- bréfi 1; 13-14 stendur: í honum hafið og þér, eftir að vera orðnir trúaðir, verið innsiglaðir með Heilögum Anda, sem yður var fyrirheitinn og er pantur arf- ieifðar vorrar, pantur þess að vér erum endurleystir Guði til eignar, dýrð hans til vegsemdar. í þessum krafti vil ég lifa, — og deyja. Náð Hans nægir mér. Kristín Jónsdóttir. 17

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.