Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 22

Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 22
<•> Kraftaverkagáfur. Kraftaverkagáfan er náskyld (rúargáfunni. Á líkan hátt. sern trúin er rótin að hinu kristna lífi. er trúargáfan grundvöllur fyrir kraftaverkagáfunni. Einnig er náið samband við lækningagáfuna, svo á stundum er erfitt að greina á milli hvað er hvað. En það er eini og sami Andinn, sem starfar í öjlum þessum gjöfum. Hlutverk kraftaverkagáfunnar virðist framkvæmd mismunandi máttarverka. Til dæmis; Að reka út illa anda, uppvekja dána, framkvæma refsidóma á hræsnurum. Post.5; 1-11, og óvinum fagnaðarerindisins, Post. 13; 6-12. 1 Efesus gjörði Guð gegnum Pál postula óvenjuleg kraftaverk, „svo að jafnvel voru bornir út til sjúkra af líkama Páls sveitadúkar eða forklæði, og sjúkdómarnir viku frá þeim, og illir andar fóru út af þeim“. Post. 19; 12. Samkvæmt Post. 2; 43 gjörðust mörg undur og tákn af postulunum. Post. 14; 3. Tökum tvær frásagnir i Postulasögunni, sem sýna kraftaverkagjöfina í starfi og lífi þeirra postulanna Péturs og Páls. I Post. 9; 40 segir frá því, að Pétur vakti Dorkas, öðru nafni Tabítu - upp frá dauðuni. Hin frá- sögnin er í Post. 20; 9-12. þar sem Páll vekur hinn unga Evtíkus til lífs. Markmið Guðs með undrum, táknum og kraftaverkum er, að fá hina óguðlegu til að gjöra iðrun og snúa sér til Drottins. Einnig til þess að fá hina trúuðu, frelsuðu, til að helgast og verða enn hæfari til þjónustu í Guðsríkinu, og leiða réttlætið fram til sigurs í heimi þessum. Þetta skeður ávallt, þegar náðargáfurnar eru i starfi og notast í samræmi við vilja Guðs, í leiðslu Heilags Anda. Spádómsgjöfin. Guðs orð hvetur sérlega til þess, að sækjast eftir þessari náðargáfu, 1. Kor. 14; 1. Ein af orsökum þessarar hvatn- ingar er, hve þessi náðargáfa hefur þýðingarmikilli þjón- ustu að gegna í söfnuði Guðs. Hún miðlar andlegum auðæfum til alls safnaðarins. Spámenn Gamla testa- mentisins höfðu mjög miklu hlutverki að gegna. Þeir voru rödd Guðs í samtíð sinni. Hjá þeim var Orð Drottins. (2 Konungabók 3; 12.) Spámenn G. T. voru vakningar- predikarar. Uppfræddu, viðvöruðu og refsuðu einnig þeim, sem viku frá réttum vegum Drottins. Sumir þeirra voru íklæddir Guðs krafti, til að gjöra tákn og undur meðal lýðsins. Sá sami Andi, sem starfaði í hinum helgu spámönnum fortíðarinnar, kemur fram með sömu ein- kennum hjáspámönnum frumkristninnar. Þeirframbera knúðir af Anda Guðs, boðskap, sem svarar þörf áheyr- enda, boðskap um fræðslu, leiðbeiningu, og þekkingu á Guðs vilja. Og einnig gátu þeir sagt fyrir ókomna hluti, t.d. spámaðurinn Agabus, sem boðaði mikla hungur- sneyð yfir alla heimsbyggðina; Kom hún fram á döguni Kládíusar. Post. 11; 27-29. Við annað tækifæri sagði Agabus fyrir um þær ofsóknir. sem mundu mæta Páli i síðustu heimsókn hans til Jerúsalem. Post. 21; 10-11. Á þeim tíma. er Jerusalem vareyðilögð af Rómverjum. árið 70 eftir Krist, segja sannar heimildir, að það hafi verið margir spámenn í söfnuðinum í Jerúsalem, sem vöruðu hina kristnu við eyðileggingu borgarinnar, og hvöttu þá til að flýja staðinn og komast I öruggt skjól. Söfnuðurinn trúði boðskap spámannanna, og flýði til staðarins Pella, norður af Jerúsalem, og bjargaðist þannig frá skelfilegum dauðdaga. Á okkar dögum hendir það oft að persónur, sem eiga hina spámannlegu gjöf, segja fyrir óorðna hluti. Þjónustuhlutverk spádómsgáfunnar er, að uppbyggja, áminna og hugga. ( I.Kor. 14; 3. Post. 15; 32.) Það er mjög þýðingarmikið atriði, að Guðs fólk taki rétta, jákvæða afstöðu gagnvart hinni spámannlegu gjöf, ekki lítilsvirða hana, það er mjög hættulegt að fyrirlíta gjafir Andans, þá lenda menn i þeirri hættu. að hryggja, eða jafnvel, slökkva Andann. (I. Þess.5; 19-21) Móse sagði forðum; „Ég vildi, að allur lýður Drottins væru spá- menn“. Sami skilningur og þrá þyrfti að ríkja hjá okkur í dag. Náðargjafirnar tilheyra ekki einhverjum vissum hóp kristinna manna, heldur öllum, sem tilheyra söfnuði hins lifanda Guðs. Varðandi notkun spádómsgáfunnar, segir Páll í Róm. 12; 6. „Þá notum hana í hlutfalli við trúna“- í 1. Kor. 14; 29-31 skrifar sami postuli; ,.En spámenn tali tveir eða þrír. og hinir aðrir skulu dæma um. en fái einhver annar. sem þar situr, opinberun, þá þagni hinn fyrri. Því að þér getið allir, hver á eftir öðrum spáð, til þess að allir hljóti fræðslu og allir verði áminntir". Hver sá boðskapur, sem framborinn er gegnum hina spámannlegu gjöf, auðkennist af, að innihald hans stemmir við Guðs orð. Guðs Andi er ávallt samkvæmur sjálfum sér. Ef það skyldi henda. að einhver áliti sig vera að bera fram boðskap, sem I heild, eða að hluta til sanr- ræmist ekki hinni guðlegu opinberun - Biblíunni - þá getum við verið viss um, að slíkur hefur ekki fengið boð- skap sinn frá Guði, heldur eru það hans eigin hugsmíðar, eða óskhyggja, eða jafnvel annarlegur andi, sem hefur fengið áhrifavald yfir honum. „Ef einhver fer með ann- arlegar kenningar og fylgir ekki hinum heilnæmu orðum Drottins vors Jesú Krists og kenningunni, sem samkvæm er guðhræðslu, þá hefur hann ofmetnast, þó að hann viti ekki neitt.“ (I. Tím. 6; 3.) Á tíð Gamla testamentisins gilti sú regla, að þegar spámaður talaði í nafni Drottins og það rættist eigi né kom fram, þá voru það orð, sem Drottinn hafði eigi talað. Af ofdirfsku sinni hafði spámaðurinn talað það, slíka þurftu þeir að hræðast (5. Mós. 18;22.) Sama gullna reglan gildir á tíð Nýja testamentisins. Guðs Orð; Heilög Ritning, er og verður hin æðsta opinberun Guðs til vor. Sú mælisnúra og hæsti réttur, sem fruni- kristnin fór eftir og hélt stöðuglega við. Postulasagan 2; 42). 22

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.