Afturelding - 01.04.1979, Side 25

Afturelding - 01.04.1979, Side 25
óþekkjanlegur. Ég fékk svarið. Hann heitir Jesús sem breytti lífi hans. Bróðir minn var alltaf fylltur gleði og hafði fengið tilgang með lífinu. Engar pillur lengur eða vín. Ég var orðinn bundinn á höndum og fótum af áfengi og sá engan útveg úr mínum ógöngum. Ég hugsaði: Hér er svarið. Það varð að koma kraftur ofan að á móti þessu öllu sem mig langaði að sigrast á. Ég þráði að eignast það sama og hann. Ég fór á samkomur með honum og heyrði boðskapinn um Jesú en það sem hneykslaði mig mest var það að bróðir minn og annar til, vinur hans, voru alltaf að tala eitthvert óskiljanlegt mál sem ég skildi ekki, og ég bað þá að hætta þessu þvaðri, en þeir sögðust vera að tala tungum. Ég héll að það vantaði einhverjar skrúfur í kollinn á þeim. En þeir fóru að útskýra þetta fyrir mér rneð Guðs orði. Ég þráði að frelsast og leysast frá áfengi. Ég þekkti enga gleði og engan tilgang með lífinu, svo ég var tilbúinn að hlusta á allt. bara ef það gæti fullnægt tómleika mínum og tilgangsleysi í lífinu. Dag einn var ég á leið í veitingahús til að reyna að fylla þetta tómarúm, með þessum andstyggðar vökva sem gerði mér ekkert nema illt og gaf enga gleði nema stund- lega. Éggekk franthjá Fíladelfíu, þá er allt í einu kallað á eftir mér: Gestur! Og ég sneri mér við, þá var það bróðir minn og hann bað mig að koma með sér upp í Hlað- gerðarkot, þar sem hann var að starfa. Ég var þver fyrir, en hann gaf sig ekki og ég lét tilleiðast og það kvöld ntörkuðust tímamót I lífi mínu. Við báðum I einn og hálfan tíma og ég sagði: Jesús, ef þú ert til, þá komdu inn * líf mitt. Ekkert gerðist. Ég vildi fá að finna hann til- finningalega, að hann kæmi og snerti við mér og leysti mtg. Ekkert gerðist og var ég vonsvikinn og reis upp og var búinn að gefa upp alla von. En Drottins fyrirhcit standa: „Ákalla mig á degi neyðarinnar og ég skal bæn- heyra þig og þú skalt vegsama mig.“ Ég var staðinn upp frá bæninni, allt í einu fer ég að tala oskiljanleg mál og það var eins og heitri vatnsfötu væri hellt yfir mig og krafturinn var svo mikill, að bróðir minn var nærri dottinn afturábak. Og ég talaði tungum alveg eins og þeir gerðu í frumkristninni. Þetta er ekkert dul- fænt fyrirbrigði, því að Guðs orð segir: „Á hinum efstu dögum mun ég úthella anda mínum yfir allt hold.“ (Post. 2- 17.) Og Jesús sagði ennfremur: Þeir sem trúa á Hann, ntunu tala nýjum tungum. (Markús 16, 17.) Á þessu augnabliki gjörbreyttist líf mitt. Ég var frelsaður og það var kominn nýr kraftur inn í líf mitt. Öll áfengislöngun hvarf. Ég var fylltur af gleði og allur tómleiki hvarf. Og þú lesandi góður, sem lest þennan vitnisburð, þér þykir Þetta óskiljanlegt og ég skil það ekki heldur, enn þann úag í dag, en ég trúi Guðs orði og finn það að líf mitt er breytt. Fólk upplifir þetta á misjafnan hátt og getur verið belsað í mörg ár, án þess að vera skírt í Heilögum Anda. þess vegna er nauðsynlegt fyrir þig sem ekki hefur öðlast þessa reynslu í lífi þinu, og fundist þig vanta eitt- hvað í þitt kristna líf. Þig hefur vantað djörfung og kraft Framhald á bls. 31 „Faðir vorið“ er alltaf beðið í kirkjum. Hversvegna ekki alltaf í samkomum Hvíta- sunnumanna? Ef til vill eru mörg svör við þessari spurn- ingu. En þetta er augljóst. Lifandi vakningarhreyfing, eins og Hvíta- sunnuhreyfingin, reis upp sem mótmæli við formum og andlegum svefni, hvar sem slíkt finnst. Fjölmargir orðsins þjónar lesa upp skrifaðar bænir, en biðja ekki frá „hjartanu“. Sunnudag eftir sunnudag, endurtókst þetta. Slíkt form skapar bindingu og tjáir ekki and- legt frelsi. í starfi frjálsra safnaða, eiga Guðsþjónust- urnar að vera leystar og þá sérstaklega í bænalífinu, þar sem Andinn innblæs viðkom- andi svo það kemur fram í rödd, hreyfingum og brennandi bænum. „Andinn biður fyrir oss, með andvörpum, sem ekki verður orðum að komið.“ í þessu andrúmslofti eru óhugsandi, upplesnar skrifaðar bænir. Allt „ritual“ fór til hliðar, en „leiðsla Andans“, sérlega í bæninni, varð ríkjandi. Sannarlega kennum við börnum okkar og biðjum sjálf „Faðir vor“. Það er bænin sem Jesús kenndi og allar bænir byggjast á. En að gera hana að einhæfu formi, skapar andlausan vana. Sóknarprestur einn hafði það fyrir sið, við hverja útför, að biðja „Faðir vor“ a.m.k. þrisvar sinnum. Ekki er það ljótt og langt frá því. Sjálfur var hann svo bundinn í forminu, að við endi, er hann las bæn Drottins, þá braut hann saman blöðin, sem líkræðan var skrifuð á. Þetta var óviðeigandi og hvimleitt. Siðvani og form getur bundið. Bænalíf á að vera opið og frjálst. Vonumst við til að svarið gefi spyrjanda svar við spurningu hans. Ritstj. 25

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.