Afturelding - 01.01.1986, Blaðsíða 16
Að játa
Látið því ekki syndina ríkja í dauðlegum
líkama yðar, svo að þér hlýðnist girndum hans.
Ljáið ekki heldur syndinni limi yðar að
ranglcetisvopnum, heldur bjóðið sjálfa yður Guði sem
lifnaðafrá dauðum og limi yðar Guði sem
réttlœtisvopn. Synd skal ekki drottna yfir yður,
því að ekki eruð þér undir lögmáli,
heldur undið náð.
Róm. 6:12-14
Ég fór í kirkju.
Fólkið sat á stangli hér og þar.
Eftir svolítinn söng og ritningar-
orð vorum við fengin til að „játa
syndir vorar". Ég átti að flytja
ræðu, standa frammi fyrir öllum
og prédika Guðs orð. Hvaða
syndir átti ég að játa, hvað hafði
ég gert?
Meðan ég hlustaði á eintóna
játningu safnaðarins, þegar allir
viðurkenndu að hafa syndgað
margvíslega í hugsun og orði,
fannst mér undarlegt hve fáum
létti við þessa athöfn. Til hvers
eru menn að játa syndir upp á
sig ef engin breyting á sér stað á
manninum. Sami vaninn, sama
hegðun tekur við eftir syndajátn-
inguna. Ertu sátt(ur) við að
sömu mistök auðkenni lífþitt?
Að játa syndir á sér langa
sögu. Daníel spámaður gekk
fram fyrir Guð í bæn og játaði
syndirsínar og lýðsins(l). í upp-
hafi Nýja testamentisins er sagt
frá þjónustu Jóhannesar skírara
(niðurdýfara, kaffærara) og fólk-
inu sem tók niðurdýfingarskírn
og játaði syndir sínar(2). Þriðja
dæmið vil ég tilgreina frá Jakobi,
bróður Jesú Krists. Hann hvetur
menn til að játa syndir sínar og
biðja hver fyrir öðrum, ,,til þess
að þér verðið heilbrigðir“(2>).
Jakob bendir á að heilbrigðið
skuli koma í kjölfar syndajátn-
ingarinnar.
Mér var það svo ljóst í kirkj-
unni, þegar allir játuðu, að mig
langaði að sjá heilbrigði Guðs
fæðast hjá okkur, svo trúin á Jes-
syndir
úm fengi breytt háttalagi fólks-
ins. Biblían hefur svo mörg
ákveðin og stefnuverkandi orð
að við komumst ekki hjá því að
finna fyrir að Guð ætlast til að
við breytumst, þegar við hlýðum
boðum hans. Þú veist að himinn
og jörð voru sköpuð með orði,
efnið varð að hlýða og við hljót-
um einnig að breytast við orð
Guðs.
Hvað er aðjáta?
Frummál Nýja testamentisins
notar orðið „exomologeo11, sem
merkir að gangast við eða játa af
fúsum og frjálsum vilja. Til að
játa syndir þínar þarft þú að vera
því sammála, gangast við að
synd sé í Iífi þínu. Fyrsta skrefið
til að nálgast Guð er að viður-
kenna óhreinindin í huga og
hjarta. Við getum ekki nálgast
Guð, nema eftir leið hans. Því-
líkur léttir að Guð hefur gefið
okkur Jesúm Krist, til að blóð
hans hreinsi oss af allri synd(4).
Viljir þú játa syndir þínar ætla
ég að gefa þér ráð. Vertu í ein-
rúmi og talaðu við Guð, teldu
upp syndir þínar og biddu um
fyrirgefningu á þeim.
sínar
Ræningjarnir á krossunum
töluðu við Frelsarann á sinn
hvorn háttinn. Annarsýndi enga
iðrun og játaði ekki syndirsínar,
þess vegna lokaði hann á fyrir-
gefninguna frá Guði. Hinn játaði
syndir sínar og bað um líkn. Sá
fékk að mæta með Kristi í Para-
dís. Fyrirgefningin kemur um
leið og við opnum Guði veg í
hjarta og vitund okkar.
Hvað um heilbrigðið?
Alls konar andleg og líkamleg
vanlíðan hverfur, þegarGuð nær
að snerta okkur. Við höfum
hundruð vitnisburða frá fólki úr
öllum stéttum, sem hefur fengið
að reyna lækningarkraft fyrir-
gefningarinnar. Þegar Jesús fær