Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Blaðsíða 35
29
irnar eru fyrir allan almenning' og kosta lítið,
en aðrar fyrir þá, sem »taka trúna alvarleg’a«
og vilja fá eitthvað meira en fjöldinn, en þær
tegundir kosta aftur talsvert meira. Enn-
fremur eru allmargar tegundir á boðstólum,
sem eiga að fullnæg'ja fróðleiksþrá og forvitni
manna. Þá eru og' nokkrar tegundir handa
þeim,. sem gaman .hafa af leyndardóma-íhugun-
um, og enn aðrar, sem sérstaklega eru ætlað-
ai- þeim, sem sjúkir eru og sorgmæddir. Og
síðast en ekki sízt.,, er ennfremur á boðstólum
fleiri en ein tegund handa þeim. sem vilja koma
sér vel við vísindin. —
Pað cr því. ástæðulaust a.ð kvarta um það,
að ekki sé nægilegt framboð á »andlegum«
verðmætum. En frá sjónarmiði kristindómsins,
hafa áhrif þessara erlendu strauma verið mið-
ur heillavænleg, þar sem sumar af þessum stefn-
Um hafa barizt opinberlega gegn kristindómin-
Um, en aðrar hins vegar síglt undir fölsku flaggi
og komið fram í nafni sannleikans og kristin-
dómsins, en hafa í reyndinni mergsogið sanrnm
Kristindóm.
En þótt vér nú þannig viljum gera, sjálf-
Um oss og öðrum ljóst, hvernig ástandið er í
faun og veru í andlegum efnum hér á landi,
þá er engan veginn þar með sagt, að vér
^hyllum algert ágæti fortíðarinnar«. Oss er það
fyllilega ljóst, að það er langt frá því, að for-
tíðin hafi ávallt verið gullöld í andlegum skiln-
ingi. Andlegur svefn og andleg jx)ka hefir ríkt
hér á landi um langan aldur..
Þess vegna var það, að vér Islendingar vor-
krn með öllu óviðbúnir að mæta holskeflunum,
hegar þær dundu yfir þjóðlíf vort, svo að þær