Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Page 40
34
um sínum niður í hringiðu tízkuspillingarinn-
ax? Þeir fá peninga, æskan glötunina og for-
eldrarnir sorgina og örvæntinguna.
Oss langar nú til þess að reyna að reisa rönd
við þessari flóðbylgjui, með því að koma til
móts við bókhneigðan æskulýð með hollar bæk-
ur, sem göfga og styrkja hreinan æskulýð, sem
setja lífi hans hátt takmark og benda honum
á leiðina til þess að ná því takmarki.
Vér höfum einnig í hyggju að gefa út bækur
fyrir þá„ sem eldri eru. Sérstaklega höfum vér
foreldrana í huga, að gefa þeim kost á bók-
um, sem geta orðið þeim til styrktar í sínu
vandasama starfi við uppeldi barnanna.
Vér viljum gefa út bækur, sem veita almenna
fræðslu um kristindóm og kirkjumáJ, fræðandi
bækur og uppbyggilegar, t. d. hugvekjur, o. s.
frv, Það eru mörg verkefni, sem eru fyrir hendi,
en getan er hlutfallslega lítil. Vér treystum
Guði og börnum hans, og þá mun tíminn sýna
hverju vér fáum til vegar komið., En nánari
greinargerð um fyrirætlanir félagsins getum
vér ekki gefið að sinni.
Áð lokum viljum vér benda styrktarfélögum
vorum á það, að bækur þær„ sem við gáfum
út að þessu sinni, eru ekki svo fullkomnar sem
vér hefðum óskað. En vér vonum að næstu
árbækur fullnægi kröfum þeim, sem sanngjarn-
ir menn gera til félagsins.
Sýnið áhuga yðar fyrir málefninu með þvx
að senda árgjaldið fyrir næsta ár nú þegar.
Biðjið fyrir félaginu!
Vér kveðjum yður með orðum postulans:
»Náð sé með yður og friður frá Guði föður