Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Síða 61
55
ir hvorttveggja, bæöi hugsjónirnar til aö hefja
Þjóðirnar á æðra stig, og orkuna til að frarn-
kvæma þær. »Ég hefi,« segir Stanley Jones,
»skyggnst með samúð inn í sál hins ókristna
heims og aldrei gat ég orðið þess var, að trú-
arbrögð ókristnu þjóðanna gætu lagt fram hug-
sjónir og hreyfiafl, til þess að lyfta þeim á hærra
stig.
3. Kristniboðið eitt allra hreyfinga, boðar
heiminum persónu þá, sem engan hnekki hefir
beðið í öllu háreystinu um umbótakröfur. Pað
er einmitt Hann„ sem með tignarkrafti sínum,
siðferðilegum og andlegum, er að ryðja til rúms
Umbótum á öllum sviðum lífsins. Hugsjónir Hans
98' andleg áhrif eru að ryðja sér til rúms
í hugum manna, breyta hugsunarhætti þeirra
°g andlegu útsýni. Jafnvel þó þeir, oft og tíð-
um, geri sér enga grein fyrir því sjálfir, að
lífsaflið í sálum þeirra er kristin hugsjón.
4. Kristniboðið er eina hreyfingin, sem boð-
ar persónu þá, er ekki verður umflúin, þegar um
ei' að ræða mælikvarða á mannlegt líferni. Jesús
Kristur er það lífsins tré, sem stendur í miðjum
aldingarði mannlegs lífernis, og það kemur í
s_arna stað niður, hvaða leið þú velur þér, þær
l'ggja allar fram fyrir Hann. Hann horfist í augxi
yið eina kynslóð eftir aðra og segir: »Hvað
virðist yður um mig og minn veg?« Og hver
kynslóðin eftir aðra kemst að raun um það, að
örlög hennar, bæði þessa heims og annars, eru
bomin undir svarinu, sem hún gefur.
5. Kristniboðið er eina hreyfingin, sem boð-
ar persónu, sem getur orðið miðdepillinn í alls-
'!erjar braíðralagi mannanna.
6. Kristniboðið, eitt allra hreyfinga, mælir