Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Page 77

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Page 77
71 ef þau annars eru stimpilskyld, sem út eru gefin í hinu íslenzka konungsríki, þegar annaðhvort a. m. k. einn aðili á þar heimili, eða skjalið hljóðar um verð- nueti hér 1 ríkinu, réttindi yfir þeim, eða réttindi eða skyldur fyrir einstaklinga, félög eða stofnanir, £em eiga heimili hér á landi. Skjalið er talið gefið út hér í rikinu, ef einhver aðilja undirritar það hér. Stimpilskyld skjöl, er almenning varða: Afsalsbréf fyrir fasteignum í ríkinu og skipum, sem hér eru skrá- sett, yfir 5 smál. brúttö, og öll önnur skjöl um afhend- ingu fasteigna og skipa, svo og erfðafestuskjöl, ef þau Veita rétt til að selja eða veðsetja, stimplast með 1% af verðhæðinni. Þegar fasteign er afsöluð hlutafélagi, er stimpilgjaldið 2%. — Þegar kaupsamningur er stimplaður, er afsalsbréf til sama kaupanda stimpil- frjálst. — Skjöl um veiðiréttindi og skjöl, sem leggja itök, skyldur og kvaðir á annara eign, stimplast með 1% af endurgjaldinu. — Félagssamningar stimplast með %% af þvi fé, sem i félagið er lagt, ef persónuleg ábyrgð er fyrir fénu, annars stimpilfrjálst, sbr. þó 26. gr. laganna. Ef félagssamningurinn hljóðar ekki fjárframlög, er stimpilgjaldið kr. 10,00. — Skulda- hréf, tryggingabréf og framsöl á þeim, innlend og út- Wd, sem hingað eru flutt til eignar eða tryggingar, stimplast með 3%0, ef skuldin ber vexti og er tryggð *heð veði eða ábyrgð, annars með 1%0. — Brot úr þús- úndi telst heilt þúsund, ef bréfið er yfir kr. 1000,00. Skuldabréf, sem ekki er hærra en kr. 200,00, er stimp- 'hfrjálst, ef skuldin ber ekki vexti og engin trygg- lr>g er sett. — Ef veð eða trygging er sett fyrir vænt- ánlegri eða óákveðinni skuld, skal greiða stimpilgjald af þeirri upphæð, sem frekast er ætlast til að tryggja. Víxlar, sem gefnir eru út hér eða ef samþykki eða Sreiðsla fer fram hér, svo og samþykktar ávísanir, aðrar en tékkar, stimplast:

x

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)
https://timarit.is/publication/407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.