Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1935, Page 25
í hásuöri þ. 20. jan. kl. 3 e. m., 14. mars kl. 2 e. m., 7. okt. kl. 10 í. m.,
12. nóv. kl. 9 f. m. og 16. dez. kl. 8 f. m.
^úpíter er viö upphaf árs í sporödrekamerki og reikar fyrst ausfur á viö
inn í höggormshaldarann, en snyr þar viö þ. 10. apríl og reikar um skeið
vestur á bóginn, en snýr viö aftur þ. 11. ágúst og reikar úr því austur á leiö.
Viö árslok er hann í bogmannsmerki. Hann er í hásuöri frá Reykjavík: Þ. 10.
jan. kl. 10 f. m., 30. jan. kl. 9 f. m., 17. febr. kl. 8 f. m., 6. mars kl. 7 f. m.,
23. mars kl. 6 f. m., 11. ág. kl. 8 e. m., 12. sept. kl. 6 e. m., 18. okt. kl. 4
e. m. og 16. dez. kl. 1 e. m. ]úpíter er lágt á lopti allt þetta ár.
Satúrnus er í ársbyrjun í vatnsberamerki og reikar austur eftir, en snýr
viö þ. 3. júlí, og reikar nú vestur á bóginn. Aítur snýr hann viö þ. 19. nóv.
og reikar austur á leiö þaö sem eftir er ársins. Hann er ennþá í vatnsbera-
merki viö lok ársins. í hásuöri frá Reykjavík er hann: Þ. 7. jan. kl. 4 e. m.,
24. jan. kl. 3 e. m., 7. ág. kl. 3 f. m., 21. ág. kl. 2 f. m., nóttina milli 18. og
19. september um miönættiö, 2. okt. kl. 11 e. m., 16. okt. kl. 10 e. m., 31.
okt. kl. 9 e. m., 15. nóv. kl. 8 e. m. og viö árslok rétt eftir kl. 5 e. m.
Úranus og Neptúnus sjást eigi meö berum augum.
Úranus heldur sig í hrútsmerkinu allt áriö. P. 31. október er hann gegnt
sólu og veröur þá um Iágnættiö í hásuöri 39V20 yfir sjóndeildarhring Reykja-
víkur.
Neptúnus er allt áriö í ljónsmerki. Hann veröur þann 6. mars gagnvart
sólu og er þá í hásuöri um lágnættið 32V20 yfir sjóndeildarhring Reykjavíkur.
(21)