Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Side 35

Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Side 35
35 „hjálpartjaldanna", eða láta þær fara forsjálausar að biðjast beininga, er sama sem að steypa þeim i tímanlega og eilífa glötun. Síðan jeg sá þessar vesölu ungu ekkjur, sumar í höndum vondra manna, sumar hrp,ktar og fyrirlitnar, sumar í sjúkra-hús- um, sumar blygðunarlausar í syndinni — þá er helvíti orðið óttalegur veruleiki i mínum augum og hjarta mitt grætur blóði yfir örlögum þessara munaðarleysingja. — Hvar er kona sú, ef hún annars á móður hjarta eða systur kærleika, sem skorast undan að leggja til alla sína krapta, til að bjarga mínnsta kosti fáeinum frá spillingardíkinu ? Drottinn himnanna, sem er hjálp í neyðinni hefir látið mig bjarga 60 ekkjum; 47 af þeim ætla i skóia minn, en hinar vinna fyrir sjer. Pað er enginn hægðarleikur að reisa þær á fætur. Fæði og klæði kosta talsver^. Erfiðara er þó að kenna þeim hreinlæti og mannasiði. Þær eru sumar veikar af langvarandi hungri, aðrar spilltari en dýr, — Það er ekki fljótlegt að kenna þeim, en i Drottni erum vjer samt sterkar. — Hann hafði falið mjer að bjarga 300 stúlkum og í hans nafni geng jeg að starfinu. Vinir mínir í Ameríku Senda mjer uppeldis kostnað fyrir 50 stúlkur, og bví spyrja mig sumir, hverjir eigi að sjá um allar hinar. Svó þurfum vjer brátt stærra húsnæði. Hvernig á að ráða fa.im úr þessu? Jeg veit það ekki, en Drottinn veit það. Jeg segi með sálmaskáldinu: „Jeg er raunar vesöl og 3*

x

Heimilisvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.