Muninn

Årgang

Muninn - 01.12.1964, Side 28

Muninn - 01.12.1964, Side 28
leyti frumleg, að hún er laus við venjuleg- an mærðarvaðal, sem slíkar greinar ein- kennast svo oft af. Jón lætur skáldið sjálft tala, enda ekki undarlegt, þar sem skoðan- ir hans á ljóðum þess eru þær, sem hann segir um „Stríð“: „Ljóð, sem gefur höfundi sínum líf, langt út yfir gröf og dauða.“ Skelfing þarf lítið til þess að öðlast slíkt „líf“. Athugasemdir Jóns eru annars góðar, í það minnsta sízt verri en tilvitnanir hans í verk Ara. Skugginn heitir kvæði eftir Viator. Ég er hrifinn af þeim líkingum og þeirri liugsun, er standa til grundvallar kvæðinu, en mér finnst það ekki nógu vel unnið. Það er slit- ið sundur í setningar, sem segja oft á tíð- um ekki fulla hugsun. Hvað segir t. d. þessi setning: „Fleygjast um fölan vegginn, flækt- ir í bendu eina.“ Hverjir eru það, sem fleygjast um fölan vegginn? F.ru það eftir- myndir stofns og greina? Ef svo er, því er þá verið að slíta erindið sundur á þessum stað. í lok fyrsta erindisins stendur: „Ef til vill einhvern bátinn út eftir firði rekur.“ Sú mynd, sem brugðið er upp í þessum lín- um, fellur ekki inn í kvæðið í heild, þó svo hún sé ágæt út af fyrir sig. Hún gerir því ekki annað en veikja það. ip. skrifar í Dýragarðinum um Jóhann Víkingsson. Greinin er allþokkaleg. Það, sem höfundur vill segja, kemst til skila. Út frá því sjónarmiði, að greinin sé skrifuð til þess að vekja athygli á Jóhanni, en ekki höfundinum, er hún jafnvel góð. Það er vandi að skrifa um mann og forðast jafn- framt að vekja athygli á sjálfum sér með stíl sínum. Sú aðferð mun umdeild. B. Sigtr. á þrjú ljóð í blaðinu. Ég vil helzt leiða hjá mér að skrifa mikið um þau. Einfaldlega vegna þess, að mér hefur ekki gefizt tími til þess að hugsa nægilega mik- ið um þau. Mér finnst sumt laglega sagt í þessum 1 jóðum. Þó get ég ekki varizt þeirri hugsun, að ég hefði ekki tekið eins rnikið eftir þeim, ef ég hefði ekki vitað hver höf- undurinn var. Athugasemd um íþróttir skrifar Gunnar Stefánsson. Þessi grein er til lýta á blaðinu. Ekki einungis vegna þess, að efnið er nauða ómerkilegt, heldur ekki síður vegna þess, að fyrir höfundi virðist það eitt vaka að hreyta ónotum í Höskuld Þráinsson. Nema svo beri að skilja, að Gunnar ætli sér að vara íþróttamenn við, svo að þeim verði lengra lífs auðið. Gunnar segir nefnilega: „læknavísindin hafa sannað, að íþrótta- menn eru skammlífari en þeir, sem ekki stunda íþróttir". Skemmtilegra hefði ver- ið, ef höfundur hefði stutt þessa fullyrð- ingu sína, með tilvitnun í þau læknisfræði- rit er sanna þetta. Eða er það ef til vill erfitt? Ólafur Oddsson skrifar um Ameríkuför. Grein hans er vel læsileg og fyllilega þess virði að vera lesin, ef menn liafa einhvern áhuga á öðrum skólakerfum, en hér tíðkast. Þungamiðjan í efni blaðsins er Múrinn eftir J. P. Sartre, í þýðingu Kristjáns Sig- valdasonar. Mér þótti vægast sagt bíræfni af menntaskólanema, að færast það í fang að þýða þessa sögu. Stíll Sartre hefur þótt erfiður viðureignar, og þegar þar við bæt- ist, að hann ritar á frönsku, máli, sem Kristján hefur ekki vald á, virðist þetta ennþá vonlausara. Ég var þess vegna undr- andi, þegar ég las þýðingu Kristjáns. Mér þótti hún góð, og það álit mitt hefur ekki rýrnað við, að ég hefi borið hana saman við enska þýðingu, — þó ekki þá, er Krist- ján notaði. Mér virðist sem það, er þar stendur komi ekki síður vel frarn í ísl. þýð- ingunni. Um hve miklar leifar séu eftir af stíl Sartre, get ég að sjálfsögðu ekki dæmt. Ég reikna þó með, að þær séu ekki minni hjá Kristjáni en í hinni ensku þýðingu Phyllis Duveen. Ég hygg, að enginn verði svikinn af lestri þessarar sögu. Kristján hef- ur vaxið af þessu verki, og er það vel. Það er gott, ef önnur tölublöð Garnbra verða ekki síðri en þetta fyrsta. Sigurður H. Guðmundsson. 56 MUNINN

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.