Dýravinurinn - 01.01.1885, Qupperneq 43

Dýravinurinn - 01.01.1885, Qupperneq 43
37 Varðhundurinn. nu sinni var varðliundur; hann var bundinn með hlekkjafesti bak við húsið, {tar sem húsbóndi hans átti heima. f>angað komu menn mjög sjaldan. Nú höfðu menn gleyrnt aumingja hundinum alveg, og haíði hann hvorki fengið vott nje |>urt í marga daga. „Voíf, voif!u sagði hann við sjálfan sig, „það er þungt að þola sult, einkum fyrir mig, sem er bundinn með lilekkjafesti, og get eigi hlaupið um og leitað að beinum, eins og ýmsir aðrir hundar. Ef jeg hetði eigi snjóinn hjerna til þess að sleikja, þá hlyti jeg að vera dauður úr þorsta. Uppi í húsinu hafa menn líklega veizlu, það er hægt að sjá ljósaganginn þar. {>eir hafa það notalegt og borða og drekka, en jeg verð að svelta í hel. Er þetta fallegt af mönnunum? Voff', voff! þetta eru launin fyrir það, að jeg held þjóf- um og bófum í burtu frá húsinu. Haldið þjer að jeg sje tilfinningarlaus, þóaðjeg sje hundur. Nei, það er mín skoðun, að margur maður geti lært mikið af góð- um hundi.“ „Jeg vildi að jeg hefði brauðbita eða nokkrar gamlar hnútur? En þama kernur líklega hann húsbóndi mimi góður! Hann kemur líklega með eitt- hvert góðgæti handa mjer“. Varðlxundurinn dinglaði rófunni, ýldi af gleði og fiaðraði með mestu á- kefð upp á húsbónda sinn. En húsbóndinn lúbarði hann með staf fyrir það, að hann skyldi hafa verið að geltaoggóla svo mikið. Hiuidgreyið skreið lúpulegur 0g sorgbitinn inn í tunnuræfilinn, sem hann átti að hafa fyrir skýli. Næsta morgun ránkaði menn uppi í liúsinu af tilviljun við, að varð- hundurinn hafði ekkert fengið að jeta í marga daga. Leifum eptir veizluna daginn áður var safnað saman í fiýti; liúsbóndinn átaldi sjálfan sig fyrir með- ferðina á hundinum daginn áður, og fór nú sjálfur með matinn lianda aumingja varðhundinum bundna. Huudurinn lítur enn einu sinni þakklátum augum á liúsbónda sinn, sleikir á honum höndina og fellur svo að fótum hans: hann var dauður! dauður af sulti!

x

Dýravinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.