Dýravinurinn - 01.01.1897, Side 43
83
Horfellirinn.
(Tekið úr »ísafold«).
jj^^vað á hann lengi að óprýða búskap vorn svo herfllega sera hann gerir
enn, þrátt fyrir allt jarðyrkjuvitið, alla þjóðmenninguna, alla mannúðina og
alla dvravináttuna?
Kátlegt er að heyra si og æ fárazt um það, hve land þetta sje ó-
björgulegt og þjóðin bláfátæk, og þó skuli húu hafa efni á því, sem aðrar
þjóðir mega ekki við, en það er að vanrækja að votryggja aðalbjargræðis-
stofn sinn, búpeninginn.
Hún hefir efni á, að eyða margsinnis dýrmætasta vinnutíma ársins,
heyönnunum, til ónýtis, með því að verja afurðum vinnu sinnar, heyfengn-
um, til þess ýmist að kvelja iífið úr skepnum sínum, eða þá að gera þær
gagnslausar, óhæfar til að geta af sjer nýtilegt afkvæmi, og nytlausar. I
stað þess að tryggja sjer fullan arð af sumarvinnu sinni með því að setja
áldrei á heyfeng sinn meira en svo, að nægt sje ekki einungis til að treina
líf í búfjenaði sinum, heldur til að gera hann sjer svo arðsaman, sem hann
getur framast orðið.
Mun eigi harla sjaldgæft, að búandi komist á vonarvöl vegna skepnu-
fæðar, fari hann vel með þetta fáa, sem hann á, láti það aldrei missa gagn
fyrir fóðurskort eða illa meðferð, hvað þá heldur að það dragist upp úr hor?
Er eigi hlægilegt að vera að skrafa og skrásetja hugvekjur ura dýra-
verndun og stofnsetja dýraverndunarfjelög, en ala í landinu umtalslaust aðra
eins dýraníðslu éins og horkvalirnar eru? Vera sjónlaus og heyrnarlaus á
þann mikla ósóma, en fárast um annað í meðferð á skepnum, sem ef til vill
er ekki nema hjegómi. Missa alla einurð, undir eins og hann ber á góma,
af því að hjer er um þjóðlöst að ræða, sem valdið getur almennum óvinsæld-
um að bekkjast til við. Tala ef til vill í hæsta lagi um hann í almennum
orðum, og fyrir því áhrifalausum, en fara allir lijá sjer, ef ganga á beinlínis
framan að honum, framan að einstökum mönnum, sem sekir gerast i þessum
ósóma, og Ijetta eigi fyr en þeir eru hæfilega og maklega brennimerktir
fyrir hann.
Hve nær ætli svo sem ófögnuði þessum verði útrýmt með því lagi,
nema aldrei?
Sumir eru svo »þjóðhollir«, í orðsins afskræmdu, en algengu merk-
ingu þó, að þeir vilja vorkenna mönnum stórum, þótt þeir hafi horfellt núna
á þessu vori, eptir jafn-gjaffeldan vetur og annað eins óþurkasumar og i
5