Dýravinurinn - 01.01.1897, Blaðsíða 57

Dýravinurinn - 01.01.1897, Blaðsíða 57
47 Til minnis. (Tekið úr Dýravininum 5. Lepti. — Aldrei er góð vísa of opt kveðin). ^K^’arið þjer vel með kestana, hlifið þeim fyrir reið og áburði, þegar þeir eru veikir, meidd- ir eða haltir. Leggið ekki of þungar hyrðir á þá, og hlífið fjörhestinum, iiafið vit fyrir hon- um, að hann ekki hiaupi oflanga spretti. Látið liestana ekki ganga berfætta á sumrin, þegar þeir eru að bera baggana fyrir yður, eða yður sjálfa, og eigi heldur á veturna, þegar svellalög eru komin, svo þeir detti ekki milli hnjótanna, sem þeir eru að naga, til að spara yður hey, eður halda í sjer lifinu, þegar mennirnir enga miskunn sýna. Látið ekki liestana ganga á gadd- inum langt fram á vetur án húsaskjóls i frosti og jarðleysi. Hættið þeim ljóta vana að hnýta í taglið, allra sizt nautum; hnýtið taumunum um klyfberabogann, en þó helzt: rekið en teymið ekki. Hættið að berja >fótastokkinn« eins hraparlega ámátlega og venja er um allt land; það er óþægindi fyrir hestinn og til athlægis fyrir alla þá, sem eru óvanir að að sjá þvilikan aðgang. Svipuhöggin þurfa stórum að fækka. Yenjið hestana á að gangast fyrir góðu, frekar en iilu. Látið ekki hesta standa lengi bundna á bæjarhlöðum við stjaka eða steina, allra sizt ef þeir eru sveittir eptir harða reið í kuldaveðri og á bersvæði. — Forðizt að sundleggja hesta i ám í frosti á vetrardag, ef hægt er að komast hjá því. Látið hestana hafa viðunanlega loptgóð hús og björt, gefið þeim tuggu af góðu heyi meðfram moði og rekjum, ef þjer neyðist til að gefa þeim það rusl. Seljið ekki gamla hesta, sem lengi hafa þjónað yður; þeir sakna kunningja sinna og átt- haganna, og mæta opt hlífðarlausri meðferð. Hættið þeim ósið að láta »hesta ganga sjer til húð- ar«; sýnið þeim þvert á móti meiri nákvæmni, þegar þeir eru gamlir; þeir þurfa þá eins ogmenn og aðrar skepnur nákvæmari hjúkrunar og vægilegrar meðferðar. Gileymið þá ekki, livað margt þeir hafa gjört fyrir yður, sem er launa vert. Horfið ekki á aðgjörðalausir, að drukknir menn eða illmenni berji hesta sína eða brúki þá halta og meidda. Fóðrið kýrnar vel, svo þær hafi fóður fram yfir það, sem þær þurfa, til að viðhalda lifi og sömu holdum; annars geta þær ekki mjólkað og sýnt gagn. Látið þær hafa loptgott og bjart fjós; básana sljetta og vel þakta árið nm kring. Haldið þeim vei hreinum, á hverjum tima sem er. Sveltið ekki sauðfjeð, ætlið þvi nægilegt vetrarfóður, svo það verði ekki horað eður hordautt á vorin, og geti gjört eiganda sínum fyllsta gagn. Látið það ekki liggja lengi við hús- dyrnar í hrið og frosti á vetrardag. Fjármaður ætti helzt að fylgja fjenu í haglendið úr húsi og i, þegar hagskarpt er og veðurhörkur. Sigið ekki hundum grimmdarlega á búsmala nje af- rjettarfje. Klippið ullina af kindunum, þegar hún er flókin eða föst, en rifið hana ekki af vel fyldum skepnum. Hafið fjárhúsin rúmgóð og loptgóð. Grjörið skepnunum, sem láta lifið fyrir yður, dauðann sem kvalaminnstan. Virðið eigi litils tryggð hundsins. Reiðið hann yfir ár og eggjagrjót, þegar hann fylgir i langferðum. Látið hann ekki vera svangan; gætið að bæninni í augum hans, þegar hann hungraður sjer mat. Berjið hann ekki; minnizt að hann leggur allt i sölurnar til þess að geta fundið eiganda sinn og fylgt honum. Gleymið ekki að bera út moð fyrir litlu saklausu snjótitlingana i vetrarliarðindum. Hættið að taka egg frá smáfuglum, og drepið aldrei móður frá ungum. Aðferð við lundaveiði á Islandi þyrfti að breytast sem allra fyrst. Miskunuarlausari veiði er naumast til á fuglum eða dýrum með heitu blóði. Væri þetta, sem hjer er sagt, fest i minni og farið þar eptir, þá liði skepnunum miklu betur en víðast á sjer stað nú; og eigandinn hefði miklu meiri ánægju og miklu meira gagn af þeim. Tr. G.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.