Dýravinurinn - 01.01.1897, Page 56
46
Þá má geta nærri, að í skipi, sem 3—4000 fjár er þrengt saman,
muni verá stækjulopt og liitinn mikill; til þess að bæta nokkuð úr skák, eru
festir upp i skipsreiðann strompar úr segldúk, sem ná ofan í lestarrúmið; að
ofan er opið vítt, svo að strompar þessir flytja mikið af hreinu lopti ofan í
skipið, einkum þegar hvasst er; troðast því kindurnar mjög að strompunum til
að svala sjer, en opt er vindstaðan svo, að mikið af kolasvælu úr reykháfn-
um berst ofan í strompinn, og verða þá nasir og snoppa á þeira kindum, er
næst standa, kolsvartar; en það er auðvitað hvorki hollt nje þægilegt fyrir
þær. Vatn f'ær fjeð ekki, svo teljandi sje, 4—5 sólarhringa milli landa, en
hey er nóg, svo að hraustasta fjeð þarf ekki að svelta, ef það gæti jetið fyr-
ir þorsta; en aptur á móti kemst veturgamalt og lingjört fje ekki að fyrir hinu
og eru þær kindur því þunnar eins og fjöl, þegar þær koma úr skipun-
um, vegna þrengslanna og sultsins.
í stórviðri og stórsjó er auðsjeð, að sumar af skepnunum er sjóveikar.
Mig hefir því opt furðað á, hve hirðulausir menn eru að gæta þess
ekki, að skepnurnar fari í skipin ósoltnar og óþyrstar. En þó blöskrar mjer
enn meira, hve hugsunarlausir menn almennt eru um það, hverjum þeir selja
skepnur sínar til útflutnings.
Líkindi ætti að vera til þess, að fjáreigendum væri annt um, að skepn-
um þeim, er þeir selja, vegni sem bezt, en því fer svo fjarri, að menn hugsi
almennt svo, er þeir selja stöðugt þeim, sem betur býður, þótt hagnaðurinn
sje ekki ineiri en 25 a. á hverri kind, og reynslan hafi sýnt, að skepnurnar eigi
langt um ver hjá honum, en hinum, sem lægra bauð. Aurarnir eru meira
metnir en velvegnan skepnanna, sem þeir hafa haft undir hendi og eru að
græða á.
Myndin af Tcöttunum er skrípamynd, börnum til gamans. Kettirnir
eru látnir halda þing um sín mál, og er lítil saga til um það, sem ekki er
rúm fyrir hjer.
Tr. G.
C<X3x>i