Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1957, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.03.1957, Blaðsíða 4
Þessir Pueblo-Indíánar, sem nú eru kristnir, eru af- komendur frumbyggja Ameríku. Forfeður þeirra voru hinir fyrstu, sem stofnuðu í Ameríku þjóðfélag. frá Asíu. Ekki einn einstakur ættflokkur, heldur margir mismunandi ættflokkar frá Norður- og Mið-Asíu. Þeir eru allir náskyld- ir Mongólum. Við vitum ekki, hvað rak þetta fólk til að yfirgefa hið gamla megin- land Asíu og leita til hins nýja, óbyggða lands i norðri, sem þá var áreiðanlega ísi lagt. Það kann að vera vegna þéttbýlis eða næringarskorts. Einnig getur verið, að ís- inn úr Norður-ísafinu hafi flæmt þá burt. Þeir fluttu engan búpening með sér. Þeir höfðu aðeins hin allra frumstæðustu verk- færi, lítið meira en óunna steina og kylfur. Þetta voru veiðimenn, og vafalaust voru f jölskylduböndin hið eina ákveðna skipulags- form. En þetta voru menn, sem voru langt á undan Neanderdalsmanninum á þróunar- brautinni. Þeir komu til lands, þar sem eng- ir menn voru fyrir. Ameríka er sá hluti jarðar, þar sem menn settust seinast að. Þeir fundu dýr, sem þeir þekktu frá hin- um gömlu heimkynnum, mammútdýr, fíla og villinaut, og þeir veiddu þau. Skref fyrir skref leituðu þeir suður á bóginn. Þeir eltu villinautahjarðirnar, þessir elztu Indíánar. 1 fyrstu kunna nokkrir þeirra að hafa reik- að aftur til Asíu af tilviljun. En þá voru fjarlægðirnar miklar. Innflytjendurnir voru aldrei mjög margir. En á tímum Kolumbus- ar hafði tala þeirra fyrst aukizt upp í hér um bil eina milljón. Hinar miklu sléttur og skógar gáfu ekki méira af sér þeirri þjóð, sem enn, eftir árþúsundir, stundaði lítið ak- uryrkju, kunni varla búfjárrækt og áleit veiðar aðalatvinnugrein sína. Nokkra þekkingu höfðu þeir flutt með sér frá heimkynnum sínum í Asíu. Listina að flétta skó, að sauma fatnað úr dýrafeldum, að skera í bein og ef til vill frásagnir og þjóð- sögur, sem gengu frá föður til sonar. Margt nýtt lærðist þeim í „Nýja heiminum": akur- yrkja og húsagerð, leikeragerð og frumstæð aðferð til að skrifa og að vinna úr rnálmum- Þekking Ameríkumanna nú á tímum á þeim mönnum, sem fyrir árþúsundum bjuggu á meginlandinu er enn ekki gömul. Eiginlega hefst fyrst 1926 kerfisbundin forsögurann- sókn í Norður-Ameríku. Þá fundu vísinda- menn í nágrenni Folsom í Nýju-Mexíkó að- setur, athafnasvæði og bústaði frumbyggj' anna. Eftir fundarstaðnum nefndust frum- byggjarnir Folsom-menn, eins og menn skírðu Neanderdalsmanninn eftir Neander- dalnum hjá Dússeldorf. Slíkur Folsom-mað- ur hefur týnt tinnusteins-spjótsoddinum 1 eldinum, þar sem hann fannst 37 þúsund ár- um seinna. Hinir einkennilega löguðu tinnusteinar eru að meðaltali fimm cm. langir. Þeir eru odd- hvassir og dálítið íhvolfir á báðum hliðum- Menn gera ráð fyrir, að þeir hafi verið not- aðir til þess að festa skaft á spjótin. örvar fundust ekki. Bogar höfðu þá enn ekki ver- ið fundnir upp. Einum örvaroddinum hafði verið stungið í beinagrind risavaxins úlfs- Folsom-mennirnir höfðu verið á veiðum. Bu steinarnir gátu ekki verið frá héraðinu kringum fundarstaðinn. Þessi steintegund fannst í Alaska. Þeir hafa verið fluttir það- an og gengið í erfðir frá kynslóð til kyn- slóðar sem dýrgripir, eða þeir komu eftir verzlunarleiðum suður, eins og skeljar Minn- esota-stúlkimnar norður. Kunnasti bústaður Folsom-mannsins var grafinn upp fyrir tuttugu árum. Það er „Lindenmeier Site“, norðarlega í Colorado- Þar fannst fjöldi dýra-beinagrinda: birnir> vísundar frá ísöld, amerískir úlfaldar, krón- hirtir og nokkrar kanínur. Öll þessi dýr höfðu verið drepin með vopnum úr steini- Hjá vopnunum fundust verkfæri, eins og húðsköfur, steinhnífar, hamrar, ennfremur perlur úr beini og skífur úr beini með merkj' um, sem höfðu verið rispuð á þær. Vísinda' menn álíta, að hér sé um að ræða teninga> sem steinaldarmennirnir styttu sér stundú með við eldana. Sennilega hafa Folsom-mennimir málað sig fyrir veiði- og stríðsferðir, að minnsta kosti þegar þeir, klæddir úlfafeldum, lágu 1 leyni fyrir villinautum. En eins og hjá öll' 48 — HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.