Heimilisblaðið - 01.05.1957, Blaðsíða 39
<— Mikasa prins, yngsti
bróðir Japanskeisara, og
kona hans voru í hnpi
fyrstu farþega flugvéla
SAS, er flugferðir hófust
yfir Norðurpólinn.
Bjarnarhúnninn N i k k i,
sem þeir Búlganín og
Krúsjeff gáfu Önnu litlu
Englandsprinsessu dafnar
ágætlega í dýragarðinum
í London, þar sem honum
hefur verið búinn stað-
ur. —>
<— í þetta líkan af Eiffel-
turninum þurfti hvorki
meira né minna en 4190
eldspýtur. Byggingameist-
arinn er þýzkur, og hefur
gripur hans vakið verð-
skuldaða eftirtekt.
Þetta er „umferðapóst-
hús“, minnsta pósthús í
heimi. Asninn þessi labb-
ar um götur Hannover og
selur frímerki og tekur við
bréfum og labbar sig sið-
an til pósthússins og skilar
af sér! —>
<— Kínversk list hefur á
seinni tímum vakið mikla
eftirtekt í Evrópu, og sjálf-
sagt hefur æði mörgum
orðið starsýnna á dans-
meyna Sja Sjú Va en
postulínsvasann, sem hún
virðist fara heldur óvar-
lega með.
Feðgar þessir eru enskir,
annar 81 og hinn nokk-
urra mánaða. Gamli mað-
urinn virðist hafa tileink-
að sér þá gullvægu lífs-
reglu, að allt sé áttraeðum
fært! ~>
' HEIMILISBL AÐIÐ — 127