Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1959, Blaðsíða 24

Heimilisblaðið - 01.07.1959, Blaðsíða 24
Einkaritarínn Ástarsaga eftir Ciril Parker vn. EINKARITARI HANS Jón Hayward sat í sama stólnum, í stóra vinnuherberginu, sem hann hafði setið í, þegar hún kom í fyrsta skipti. Það var enn- þá dregið fyrir gluggana, svo birtan kæmist ekki inn, og Elínu fannst eins og hann hefði ekki hreyft sig úr stað, síðan á laugardag- inn, þegar hún kom hér með Hrólfi. „Ég vona að þér hafið ekki gleymt mér,“ sagði hún þegar Jói hafði vísað henni inn og var farinn aftur. Hann leit upp. „Nei, ég hef ekki gleymt yður. Þér eruð vinkona Hrólfs, ungfrú Hallo- well. Fáið yður sæti.“ Elín settist ofurlítið óánægð. Hann kom fram við hana eins og hún væri gestui'' Hann hafði ekki einu sinni beðið hana að fara úr kápu og taka ofan hattinn. Hann hafði kannske séð sig um hönd. „Ég hef hugsað málið,“ sagði hann eftin langa þögn. „Ég get ekki lagt þetta á yðun Yður mun alls ekki líka að vinna fyrir inig' Mér semur yfirleitt ekki við aðra en JÓ3' Ég er mjög erfiður og óviðráðanlegur . • • Hann leit skyndilega upp. Elín var staðin a fætur. „Nú skuluð þér hætta,“ sagði hún, rjóð í kinnum og horfði ásakandi á hann. ,,É£ held bara að þér njótið þess að hlusta 3 sjálfan yður tala svona. Þér töluðuð svona einnig á laugardaginn, og það er ákafleg3 barnalegt. Eg veit að það hlýtur að vera erfitt fyrir yður að sitja þarna, en þess vegna þurfið þér ekki alltaf að stagast á að þér séuð svo erfiður." Á meðan Jón Hayward starði undrandi a eftir Elínu, gekk hún hratt að glugganura og dró gluggatjöldin frá. Síðan gekk hún tfl hans og stóð þrákelknisleg á svip fyrir frana* an hann. I skærri sólarbirtunni sá hann na að hún var óvenju hrífandi og mjög ung- Þegar hún fór úr kápunni og tók af sei' hattinn, varð honum ljóst að honum líkaði vel við hana. Þrátt fyrir reiðisvipinn vaf eitthvað barnslegt við hana. „Þetta getur maður nú kallað skap,“ sagð1 Jón. « „Það er mjög sjaldan að ég verð svona, flýtti hún sér að segja afsakandi, en svo brosti hún. „Leyfið mér að vinna fyrir yður- Það er sama hvað þér segið, ég veit að mel mun líka það vel.“ Hann horfði forvitnislega á hana, svo va1' eins og svipur hans slokknaði aftur, og hanU yppti öxlum. „Jæja þá, eins og þér viljið> sagði hann. ★ Elín fór með kápuna sína og hattinn frai11 og hengdi inn í fataskápinn, og þegar hua kom inn aftur, sagði hann: „Þér getið nota skrifborðið þama, en ég ætla ekki að vinUa í dag. Ég er ekki í skapi til þess. En Þ®1 getið lagað til í skrifborðsskúffunni, ef viljið.“ Elín kinnkaði kolli og hóf rösklega vim1 HEIMILISB laði5 156

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.