Heimilisblaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 19
Það er aðeins eitt, sem mig langar til að
biðja þig að gera, þegar þú kemur heim
til okkar, og það er að taka leikföngin
hans litla bróður míns og færa honum
þau. Ég ætla að láta þau út í hornið
hjá eldavélinni, hestinn hans og járn-
brautarlestina og allt hitt dótið. Ég veit,
að honum leiðist á himnum, ef hann
vantar það, sérstaklega hestinn. Hon-
um þótti aíltaf svo gaman að honum.
Gerðu það fyrir mig, að færa honum
hestinn. Þú þarft ekkert að hugsa um
að skilja neitt eftir handa mér, en ef
þú gætir gefið pabba eitthvað, svo að
hann yrði aftur eins og hann var áður,
þegar hann kveikti í pípunni sinni og
sagði mér sögurnar, þá vildi ég að þú
gerðir það. Ég heyrði hann einu sinni
segja við mömmu, að ekkert gæti lækn-
að sig nema eilífðin. Ef þú gætir fært
honum eitthvað af henni, þá skyldi ég
alltaf vera þæg og góð stúlka...
Þín Marian.
Um kvöldið gekk Fred Armstrong
hraðar heim til sín en hann var vanur.
Uann nam staðar á blettinum fyrir fram-
an húsið og kveikti á eldspýtu, og þegar
^ann opnaði eldhúsdyrnar, blés hann út
br sér stórum reykjarmekki, sem mynd-
aði líkt og geislabaug kringum höfuðið á
k°nu hans og dóttur. Og hann brosti til
beirra, eins og hann hafði gert í gamla
^aga.
^Eimilisblaðið
Gott og farsælt nýtt ár!
heimilisbláðið
_______—s
í~ —
239