Heimilisblaðið - 01.12.1962, Page 24
< Þessi rúmmáls-myndavél
var á alþjóðasýningu í Vínar-
borg, þar sem sýnd voru land-
mœlingatæki. Þegar umferð-
arslys verða, verður ónauðsyn-
legt að loka umferðinni, því
með þessari vél verður hægt
að taka myndir á slysstaðnum
og framkvæma síðan aliar
mælingar við skrifborðið.
Þessi bandaríska skólastúlka á
í erfiðleikum með heimadæm-
in sín, svo það kemur sér vel
að faðir hennar vinnur við
rafmagnsheila. Hann sézt aö
baki þeirra. Slíkt tæki reiknar
hvorki meira né minna en
420.000 tölur á mínútu, svo
verkefni telpunnar reiknar það
á broti úr sekúndu. >
< Kannski verða stálhælarnir
leystir af hólmi af hælum með
hjóli. Slíkir hælar voru sýndir
á sýningu í London síðastliðið
vor, og þótt einkennilegt virð-
ist vera eru taldar líkur á að
þeir nái útbreiðslu.
Nýlega er látin í Banda-
ríkjunum Elenora Roosevelt,
ekkja Franklins D. Roosevelts,
fyrrverandi forseta Bandaríkj-
anna. Hún vann mikið fyrir
allskonar líknartarfsemi. Árið
1939 tók hún á móti 4729
borðgestum, 9211 tegestum,
14056 komu í stórveizlur, en
auk þess komu svo árlega
1.320.000 gestir til að skoða
Hvíta húsið. Á þessu má sjá
hve mikið starf hvílir á for-
setafrú Bandarikjanna. — Þau
hjónin áttu 4 syni og 1 dótt-
ur. >
Fimleikamaöurinn Carlos
Rosarie, 22 ára gamali kvænt-
ist loftfimleikakonunni Tina
Paulo, 18 ára. Hér sjást þau
fyrir utan kirkjuna, sem
vígslan fór fram í. >
< í þýzku borginni Dresden,
sem varð mjög illa úti í
sprengiárásum í styrjöld-
inni, hefur verið byggt nýtt
listasafn á rústum þess gamla.
Fólk streymir nú aftur að til
að sjá hina gömlu listadýr-
gripi, þ. á m.'hina frægu sixt-
insku madonnu Rafaels.
244
heimilisblaðiI)