Heimilisblaðið - 01.12.1962, Side 39
a kaldan stað. Deigið er rúllað út í lengju
a þykkt eins og blýantur, lengjurnar eru
siðan skornar í 5 cm löng stykki, sem eru
*ögð með nokkru bili á plötuna. Stykkin
®ru flött út með gaffli sem er oft dýft í
kveiti. Bakað vjð meðalhita í 10 mín.
^i’emið: Flórsykurinn er síaður með kakói
°g hrærist út með heitu vatni. Báðir end-
ar á kökunum eru settir ofan í og þær
siðan settar á rist þangað til kremið er
orðið hart.
☆
Að lokum er hér svo uppskrift af mjög
fljótbakaðri tertu.
125 gr smjörlíki 65 gr hveiti
125 gr sykur 65 gr hafragrjón.
Smjörlíki og sykur hrærist saman.
Hveiti og hafragrjónum hrært út í, deig-
ið síðan smurt á tvö tertumót.
Bökunartími ca. 5 mín. við góðan hita,
og síðan látið kólna, áður en það er tekið
af plötunni. Súkkulaðiglasúr er smurður
á annan botninn og þeyttur rj ómi og smátt-
skornir bananar látnir á milli.
Skemmtilegir jólasveinar
klipptir út í filt
Það eru varla nokkur takmörk fyrir
uví hvað hægt er að gera við þessa jóla-
sveina. Það má búa til skemmtilegt jóla-
^efgteppi úr hessian-striga, það má búa til
riUglóttan dúk — einnig úr hessian-
striga — til þess að hafa undir jólatrénu.
Það má búa til jólapúða eða klippa þá út
í glanspappír og hina á pappa. Það er
bezt að nota filt í mismunandi litum, ofur-
lítið köflótt léreft, ullargarn í hár og út-
saumsgarn í augu og munn. Á þessa mynd
má einnig líma útklippt jólatré, rauð
hjörtu og stjörnur eins og sýnt er á með-
fylgjandi mynd. Góða skemmtun og gleði-
leg jól!
ÍLISBLAÐIÐ
?59