Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 7

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 7
Máltíð fyrir tvo Smásaga eftir Louise Heilgers. Eftir tíu ára heiðvirt líf gósseigandans, varð Mortimer Blake skyndilega dauðleið- ur á slíku tilbreytingarleysi. Og það gerð- ist á eftirfarandi hátt. Hann var á leið heim til sín eftir orðasennu við sóknar- prestinn út af réttlátri skiptingu gjaf- anna til fátæklinga um áramótin. Þá rann það upp fyrir honum eins og ljós, að hans eigið vel skipulagða líf væri í rauninni drepleiðinlegt og ekki til að afbera það lengur eins og það var. Og það var á þessari stundu, sem töfra- orðið París kom fram í hug hans. Það var eins og rósaberin og þyrnarnir í limgerð- unum hrópuðu þessu orði að honum með fullum krafti sinna litlu, rauðu tungna. Honum hafði ekki komið París til hugar í heilan áratug — ekki síðan hann hafði hrist af sér ryk hennar og kærar minn- ingar frá Montmartre, ásamt öllum lista- mannshugleiðingum, og sezt að í Mule- ston. Nú vaknaði endurminningin hins vegar af dvalanum, hress og endurnærð eins og risi eftir hvíldarsvefn, og hvíslaði að honum hverri endileysunni eftir aðra: um ljósin við breiðgöturnar á kvöldin, um hressandi hávaðann frá zígaunahljóm- sveitunum á veitingahúsunum, um hinn ópalgræna víndrykk, um langar og töfr- andi ökuferðir í tunglsljósi um Bois de Boulogne með fagra konu við hlið, ang- andi af heimsins töfrafyllstu smyrslum og ilmvötnum. Kona! Þær höfðu verið margar á lífs- leið hans, en aðeins eitt andlit birtist hon- um þó ljóslega fyrir hugskotssjónum, þar sem hann stóð grafkyrr á kröpugum þjóð- veginum og leit annarshugar í átt til sít- rónugulrar sólarinnar, sem engu að síður tókst að fá nálarnar á trjánum til að glitra sem gimsteina. Eitt andlit, fullt af lífi undir svip fölvans, einna líkast því gula ljósi sem lagði frá kínverskum lömp- um; hlægilega lítill, rauður munnur, og þetta slétta dökka hár, sem var svo stirn- andi svart og bylgjaðist niður með vöng- unum. Það var eins og hann væri búinn að gleyma hvað hún hét, en þar sem hann nú sá hana fyrir sér í anda, rifjaðist nafn hennar upp fyrir honum og öðlaðist líf að nýju. Hann mælti það upphátt af munni fram í köldum desembergjóstinum, sem feykti því ertnislega eitthvað út í buskann: „Margot!“ Daginn eftir var hann kominn til Par- ísar. Þetta var á gamlárskvöld, og um leið og leigubíllinn hans keyrði frá Gare du Nord, varð hann heillaður af gullinni ljósadýrðinni og ómi hlátra og glaðværðar. Við litlu borðin utan við veitingahúsin sátu skeggjaðir Frakkar, og hvarvetna gaf að líta ljómandi andlit kvenna eins og björtustu rósir. í öllum regnbogans litum ljómuðu sömuleiðis ljósaauglýsingarnar frá göflum og þökum húsanna. Hin sér- kennilega angan Parísarborgar lá í sjálfu andrúmsloftinu, ólýsanleg, óskiljanleg. Þessir töfrar gripu líkt og fyrir kverkar honum mjúku taki. Tíu leiðinleg ár reglu- seminnar hurfu frá honum, eins og þau hefðu aldrei átt sér stað í lífi hans. 1 hjarta sínu dansaði hann cancan um leið og bíllinn fór um Elysée á leið til hótels- ins. í pálmaskreyttum forsal veitingahúss- ins, þar sem allt var krökkt af konum í skrúða paradísarfugla, og hávær tónlist frá ungverskri hljómsveit barst að eyrum hans, hvarf nokkuð af þessum töfrum. Þetta var ekki sú París, sem hann hafðí áður þekkt, París gangstéttanna þar sem hægt var að lifa og elska fyrir örfáa skild- inga. En Parísarborg náði töfravaldi á honum að nýju, rétt eins og þráð fegurðargyðja, er hann nokkru síðar — eftir hressandi bað — lagði af stað út í Parísarnóttina — þessa sérkennilegu nótt, sem getur ljóm- að bjartar en nokkur dagur — og ók í átt til Bíawc-veitingahússins við Rue Pigalle. Hann hafði fengið þá flugu í kollinn, að HEIMILISBLAÐIÐ 7

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.