Heimilisblaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 42
Hin 23 ára gamla France Nu-
yen, kunn úr kvikmyndinni
„South Pacific" er kínversk í
móðurætt en frönsk í föður-
ætt. France Nuyen leikur nú
aðalhlutverk í kvikmyndinni
„Imperial Woman“, sem er
gerð eftir sögu Pearl Bucks.
Hér á myndinni sést, þegar
hún heimsótti æskustöðvar
sínar.
25 ár eru liðin síðan nælon-
sokkarnir komu fyrst á mark-
aðinn i San Francisco. Upp-
finningamaðurinn var banda-
ríski vísindamaðurinn Wallace
Honue Carrother, sem starf-
aði við Du Pont-stofnunina í
Bandaríkjunum. Upprunalega
var efnið kallað „Fiber 66“ og
var tekið með tortryggni af
konunum framan af. í dag eru
nælonsokkar næstum ómiss-
andi.
Á sýningu á sérstæðum mun-
um til að skreyta hátiðaborð
sýndi vöruhús í París þenna
smágerða gosbrunn úr kristalli.
Hann kostar 18.000 nýfranka.
Ef vel er að gáð, má sjá smá-
hlut undir fæti þessa dfgra
unglings. Hann stendur nefni-
lega á armbandsúri. Myndin er
tekin á alþjóðlegri úra-sýningu
í París, og verkefni mannsins
er að sannprófa styrkleika
úrsins. Úrið stóðst þessa til-
raun.
Hvíti knapinn á myndinni
tekur sig vel út á hinum
dökka reiðskjóta sínum. Þetta
eru tvær þekktar kvikmynda-
stjörnur, hundurinn Bimbo og
asninn Basil. Bimbo lék m. a.
í „Bonjour Tristesse".
St. Christofferkirkjan í bæn-
um Toucoing í Norður-Frakk-
landi hefur fengið klukku-
spil að gjöf frá fyrrverandi
bæjarbúum, sem nú eru bú-
settir víðs vegar um heiminn.
Hér á myndinni sést þegar
blómskrýtt klukkuspilið var
reynt, þar sem því hafði verið
komið fyrir úti fyrir kirkjunni.
í því eru 43 klukkur, sem
vega frá tíu kílóum til allt
að sex tonnum.
42
HEIMILISBLAÐIÐ