Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 34

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 34
ég dveldi lengur á hótelinu. Hann hefur líklega á réttu að standa. Mann eins og mig sem hrekur í burtu gestina, er ekki hægt að nota.“ „Því miður verð ég að segja þér að þú hefur á réttu að standa. Það er leiðinlegt en það er oftast einn gikkur í hverri veiði- stöð. Fólk eins og þessi Amstetten getur auðveldlega eyðilagt fyrir manni viðskipt- in. Það er gott að faðir hennar er í burtu í augnablikinu. Vonandi verður hann enn um stund meðan að fyrnast tekur yfir at- vikið.“ „Ég skil þetta allt of vel. Gerðu þér eng- ar áhyggjur, Franz, ég fer.“ „Taktu þér þetta ekki alltof nærri, Michael. Farðu til Xaver Steiner, og berðu honum beztu kveðju mína. Þá færð þú strax leiðsögumannsstarf.“ „Þakka þér fyrir Franz, og vertu bless- aðui’.“ „Blessaður Michael og láttu sjá þig bráð- lega aftur.“ „Meinarðu þetta?“ „Auðvitað meina ég þetta.“ Franz þrýsti hönd vinar síns og félaga hjartanlega. Síð- an lokuðust dyrnar að baki Michael. Fyrir utan stóð Veronika og skalf enn öll af æs- ingi. „Ég verð ekki eftir, ég fer með þér, Michael,“ sagði hún og sneri til dyra. „Nei, Veronika, það máttu ekki gera. Ég veit ekki hvort ég vinn mér nokkuð inn næstu vikurnar, og pabbi þarf á pen- ingum að halda. Hann þarf að kaupa kú, og þakið þarfnast viðgerðar. Ég reiði mig á að þú hjálpir honum.“ „Ef þú lítur þannig á, Michael, þér vil ég auðvitað hjálpa og einnig föður þínum. En hvað ætlastu fyrir, Michael?“ „Franz álítur að ég eigi að fara yfir til Cortina. Ferðamannastraumurinn stendur enn um hríð, og enn veit enginn hvað hér hefur skeð. Veronika, þú hafðir rétt fyrir þér, ég hefði átt að hlusta bet- ur á þig.“ „Nú er það of seint. Þú verður að gæta þess að vera ekki jafn auðtrúa í næsta skipti. Svona fólk veit ekki hvað það á að gera af eintómu drambi og leiðindum." „Þetta segir þú, en ég er helzt á að ég hefði átt að þrýsta fastar að hálsi ung- frú Amstetten og losa hana í eitt skipti fyrir öll við löngunina til að hafa strákfífl eins og mig að spotti.“ „Michael, í guðs bænum talaðu ekki svona.“ Hún var náföl af skelfingu. „Því ekki?“ Andlit Michaels var af- skræmt af óeðlilegum hlátri. „Slíkar mann- eskjur hafa engan rétt til lífsins.“ „Michael. Ertu ekki með réttu ráði? Hef- ur þú alveg gleymt Faðirvorinu, sem við vorum vön að biðja saman fyrir framan krossmarkið heima?“ „Veronika, þú skilur mig ekki. Þú veizt ekki hvernig ást sem er svívirt og fótum troðin eins og ást mín getur umhverft öllu.“ Veronika faldi andlitið í höndum sér. Vissi hún þá í rauninni ekkert um óham- ingjusama ást? Nei, um óhamingjusama ást vissi hún ekkert. Ást hennar á Michael var helgidómur, sem hún geymdi í hjarta sínu. Aðeins guð, sem lagt hafði henni þessa ást í brjóst, vissi um hana, og eng- inn annar mundi fá að vita það. „Veronika, hvað ertu alltaf að gera þarna úti?“ Það var rödd yfirmatreiðslu- konunnar. „Komdu nú, við þurfum á þér að halda.“ „Ég verð að fara að vinna. Hvað á ég að segja föður þínum, þegar ég kem heim?“ „Segðu honum að ég hafi ráðið mig til Cortina. Og minnztu ekkert á þetta með ungfrú Amstetten.“ „Þarna koma þau. Farðu, svo að þú komir þér ekki í uppnám aftur.“ „Vertu sæl, Veronika. Berðu kveðju til pabba.“ Veronika flýtti sér inn í eldhúsið, og þegar ísabella kom út ferðbúin, var Micha- el einnig horfinn. Mergentheim hafði náð í bílinn í bílskúrnum. Hann hafði einnig sagt upp herbergi sínu og ætlaði að dvelj- ast í Cortina ásamt prófessor Amstetten og dóttur hans. Þau höfðu pantað herbergi símleiðis á Hótel Christallo og fengið þau samstundis. Þau kvöddu í flýti og á fleygi- ferð brunaði vagninn af stað í hættulegar beygjur vegarins. En þegar ekkert sást lengur af honum annað en rykský, kom 34 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.