Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Qupperneq 21

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Qupperneq 21
og af beizkum möndlum barst út, og lækn- irinn hneig niður á skrifborðið. „Blásýra,“ sagði Barreaux stuttaralega, sneri höfði læknisins og ýtti upp öðru augnalokinu. „Já, þessu bjóst ég við. Jæja, það var kannski bezt. Þetta hefði orðið ógurlegt hneyksli, ef hann hefði lifað. Nú er hægt að flytja alla þessa litlu bófa til Guyana án nokkurs gauragangs.“ Þetta var eina útfararæðan, sem hald- in var yfir dr. Paul. Daginn eftir varð Alice lögráða og gerði þá formlega kröfu til arfsins. Síðdegis voru þau Alice og Henry gefin saman í hjónaband á lítilli og sérkennilegri skrif- stofu borgararstjórans í Asniéres, því að matarveizlan átti að sjálfsögðu að fara fram í veitingahúsinu, sem kona Jules hafði rekið, meðan Henry hafði ekki vilj- að hafa konur í heimilishaldi sínu. Með stuttum fyrirvara hafði heppnazt að ná saman öllum þeim, sem tekið höfðu þátt í þessum æsandi eltingaleik. De la Chalon- ne, greifaynja frá Sainte-Luzanne, sat við hliðina á útfararstjóranum frá Neuilly og Gaby, sem með hálfum huga hafði komið í boðið, þar sem hún leit á það sem opin- bera viðurkenningu á breyttri afstöðu hennar, — hún sat við hliðina á Jean Monier. En það var greifaynjan, sem sagði lausnarorðið í lítilli ræðu, sem beint var til hins nýorðna eiginmanns: „Já, Henry,“ mælti hún, „flestir karl- menn vilja gera allt peninganna vegna og margir vilja gera allt fyrir unnustu sína, svo að það er ekki að furða, þótt þér vilduð gera heilmikið til þess að hljóta hvort tveggja.“ Alice greip hönd Henrys undir borð- dúknum. „Það var aðeins vegna unnustu þinnar, sem þú gerðir það. Er það ekki rétt, elsku vinur?“ Henry þrýsti hönd hennar og kinkaði kolli. (Endir.) Enda þótt mikil ólga sé inn- byrðis víða i Afríku, nýtur litli dahomey-drengurinn frið- ar í hvílupokanum við hrygg móður sinnar. Dahomeyríki er í Vestur-Afríku, við Guine- flóa, 118.000 ferkm., íbúar 1.7 milljón, var áður frönsk ný- lenda. í Frakklandi er nú verið að gera kvikmynd af lífi Henriks II, hertogamnn frá Guise og hinum verðandi Henrik IV. Ný leikkona, Jaoqueline Danno leikur Catherine de Cleves, konu hertogans frá Guise. HEIMILISBLAÐIÐ 21

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.